Tuttugu og fimm bandarísk ríki hafa lögsótt ríkisstjórn Donalds Trump vegna nýrra tolla sem lagðir voru á tugi landa. Á vef BBC segir að málsóknin, sem var höfðuð í gær, snúist um 10 til 12,5% tolla sem tóku gildi í síðasta mánuði. Nýjustu tollarnir beinast gegn 59 ríkjum auk Evrópusambandsins og ná yfir 99,4% af öllum innflutningi til Bandaríkjanna. Tollarnir voru lagðir á í samræmi við bandarísk viðskiptalög frá 1974 sem ætlað er að bregðast við ósanngjörnum viðskiptaháttum, meðal annars nauðungarvinnu. Sjá einnig Tollarnir á Evrópusambandið - ekki Ísland Samkvæmt málsgögnum segja ríkin, sem eru undir stjórn demókrata, að ákvörðun ríkisstjórnarinnar sé handhófskennd, óútskýrð og ólögleg. Kush Desai, talsmaður Hvíta hússins, hefur svarað gagnrýninni og segir að Bandaríkin séu einungis að nýta lögbundið vald til að berjast gegn viðskiptaháttum sem vinna gegn bandarískum fyrirtækjum. Í málsókninni segir jafnframt að ríkisstjórn Trump geti ekki notað nauðungarvinnu sem yfirskin til að halda áfram ólögmætu tollakerfi. Trump beitti síðast hinu umrædda lagaákvæði árið 2018 þegar tollar voru lagðir á Kína, en þá hafi átta mánaða rannsókn legið að baki ákvörðuninni. Að þessu sinni hafi rannsóknin, sem náði til um 60 viðskiptalanda, aðeins staðið yfir í tvo mánuði.