Innlent | mbl | 4.8.2026 | 8:59 Ráðherra vill breyta lögum um .is Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Innviðaráðuneytið hyggst stuðla að auknu öryggi, skilvirkni og hagkvæmni við notkun landshöfuðlénsins „.is“. Þetta kemur fram í áformum um breytingu á lögum um íslensk landshöfuðlén sem kynnt hafa verið í samráðsgátt stjórnvalda en áformin verða til umsagnar til 20. þessa mánaðar. Í upplýsingum sem fylgja áformunum í samráðsgátt segir að landshöfuðlénið „.is“ sé hluti af ómissandi innviðum samfélagsins og miklir hagsmunir bundnir við það að umsýsla með lénið sé framkvæmd á skilvirkan, ábyrgan og öruggan hátt. Fjallað er um að skráning léna undir „.is“ hafi um árabil verið í höndum hlutafélags í einkaeigu, Internet á Íslandi hf. (ISNIC), sem sé eini útnefndi skráningaraðili íslensks landshöfuðléns gagnvart alþjóðlegu stjórnkerfi internetsins og því í einokunaraðstöðu hvað varðar úthlutun léna með endingunni „.is“. Hvergi annars staðar á Norðurlöndum sé sambærileg starfsemi í höndum hagnaðardrifins einkafyrirtækis og víðast hvar reglurammi um starfsemina þannig úr garði gerður að stjórnvöld hafi meira um það að segja hvernig henni sé háttað. Gefur tilefni til úrbóta Árið 2021 voru í fyrsta sinn sett lög um íslensk landshöfuðlén en ráðuneytið telur að reynslan af framkvæmd laganna gefi tilefni til úrbóta. Meðal þeirra úrlausnarefna sem fram hafa komið eru: Gildandi lög hafa að geyma mjög takmarkaðar reglur um hvernig skráningarstofa skuli haga starfsemi sinni og að ákvæði um umgengni við landslénið skorti, svo sem um að skráning þjóni lögmætum hagsmunum og skerði ekki lögvarin réttindi annarra. Verðlagning léna sé þá mun hærri en í nágrannaríkjum og engin viðmið eða reglur gildi um hana. Ekkert í lögunum komi í veg fyrir svonefndar leppskráningar léna, þ.e. þegar milliliður sem skráður er rétthafi léns er ekki raunverulegur stjórnandi þess, en slíkt eykur hættu á að íslensk lén séu notuð í sviksamlegum tilgangi og getur skapað ógn við netöryggi og aukið orðsporsáhættu. Réttindi neytenda eru ekki nægilega tryggð, sem er sérstaklega mikilvægt þegar um einokunarstöðu þjónustuaðila er að ræða. Ekki er til staðar ódýr og skilvirk leið, með aðkomu óháðs aðila, til úrlausnar ágreiningsmála milli skráningarstofu og notanda. Engin heimild er til að innheimta gjald af skráningarstofu til að standa straum af eftirliti. Lögregluyfirvöld og dómsmálaráðuneyti hafa bent á að lögreglu skorti sjálfstæða heimild til að krefjast lokunar og haldlagningar á lénum sem tengjast brotastarfsemi. Ákvæði um beitingu forkaupsréttar mættu vera skýrari og hlutverk Fjarskiptastofu í því ferli betur skilgreint. Áformað er að bregðast við þessu með sérstöku frumvarpi til breytinga á gildandi lögum. Engar umsagnir hafa borist enn sem komið er. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Þrír skipaðir í bótanefnd Lést í svefni Ráðherra vill breyta lögum um .is Vill burt úr Garðabænum Einar Örn nýr forstjóri First Water Umræðan Nú sjáum við afleiðingarnar Enn um víðtækt framsal valds til ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Drengjunum sleppt: Byssurnar sagðar leikföng Myndir: Vinna að því að klófesta lausa minka Minkagildrurnar tómar í morgun: Sjá til lands Eins og að ég væri í návist almættisins Mest lesið Í gær Í vikunni Íbúar yfirbuguðu innbrotsþjóf Andlát: Heimir Hannesson Tölvupóstar streyma til forsætisráðherra Maðurinn er kominn í leitirnar Hitinn gæti farið upp í 20 stig í dag Færri erlendir ríkisborgarar til landsins Tvö bílslys á Norðurlandi vestra: Telja bíla ónýta Myndskeið: Þegar stjórn Banderos var tekin yfir Nær ógerningur að fá ráðherra til að ræða ESB Vilja halda daginn heilagan Maðurinn er kominn í leitirnar Mismunað eftir stöðu foreldra Gróf líkamsárás á Akureyri Myndir: Aldrei tekist jafn vel til með hátíðina Kærðir fyrir að miða eftirlíkingum á fólk Tvö bílslys á Norðurlandi vestra: Telja bíla ónýta Drengjunum sleppt: Byssurnar sagðar leikföng Sjúkraflutningamaður sleginn í Eyjum Vilja halda daginn heilagan Málarar þurrka tárin Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Bandero siglir utan í skip Hvals Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Saklaus læknatími endaði með innlögn Gunnar Þórðarson er látinn Nýjast á mbl.is » Þrír skipaðir í bótanefnd Lést í svefni Ráðherra vill breyta lögum um .is Vill burt úr Garðabænum Einar Örn nýr forstjóri First Water Umræðan Nú sjáum við afleiðingarnar Enn um víðtækt framsal valds til ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Myndir: Vinna að því að klófesta lausa minka Eins og að ég væri í návist almættisins Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Enginn skipverjanna í gæsluvarðhaldi Mest lesið Í gær Í vikunni Íbúar yfirbuguðu innbrotsþjóf Andlát: Heimir Hannesson Tölvupóstar streyma til forsætisráðherra Maðurinn er kominn í leitirnar Hitinn gæti farið upp í 20 stig í dag Færri erlendir ríkisborgarar til landsins Tvö bílslys á Norðurlandi vestra: Telja bíla ónýta Myndskeið: Þegar stjórn Banderos var tekin yfir Nær ógerningur að fá ráðherra til að ræða ESB Vilja halda daginn heilagan Maðurinn er kominn í leitirnar Mismunað eftir stöðu foreldra Gróf líkamsárás á Akureyri Myndir: Aldrei tekist jafn vel til með hátíðina Kærðir fyrir að miða eftirlíkingum á fólk Tvö bílslys á Norðurlandi vestra: Telja bíla ónýta Drengjunum sleppt: Byssurnar sagðar leikföng Sjúkraflutningamaður sleginn í Eyjum Vilja halda daginn heilagan Málarar þurrka tárin Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Bandero siglir utan í skip Hvals Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Saklaus læknatími endaði með innlögn Gunnar Þórðarson er látinn