- What: A website containing personal information about members of the U.S. Immigration and Customs Enforcement (ICE) under an Icelandic domain is under police investigation.
- Impact: The Icelandic Minister of Infrastructure plans to amend laws regarding the Icelandic top-level domain to increase public oversight of ISNIC.
Erlend vefsíða þar sem birtar voru persónuupplýsingar um liðsmenn bandarísku innflytjendastofnunarinnar ICE undir íslensku léni er á borði lögreglu. Innviðaráðherra telur brýnt að breyta lögum um íslenskt landshöfuðlén þannig að hert verði á opinberu eftirliti með skráningarstofunni ISNIC, sem heldur utan um .is-lénið. Á vefsíðunni Icelist Wiki voru birtar upplýsingar um rúmlega 4.500 ICE-liða. Írskur maður stendur á bak við síðuna og hún er hýst í Hollandi. Aðeins lénið er íslenskt. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er málið á borði hennar. Lögreglan segist ekki geta veitt frekari upplýsingar að svo stöddu og því er ekki er ljóst hvort farið verði fram á að léninu verði lokað. „Flókið og viðkvæmt álitamál“ Innviðaráðherra hyggst leggja fram frumvarp um breytingu á lögum um landshöfuðlén á haustþingi. Henni er meðal annars ætlað að verja orðspor Íslands, auka vernd neytenda og sporna gegn svikastarfsemi, að því er fram kemur í skriflegu svari ráðuneytisins við fyrirspurn fréttastofu. Þá er stefnt að því að herða eftirlit með skráningarstofunni sem heldur utan um landshöfuðlénið og auka kröfur um upplýsingagjöf umsækjenda um lén og setja efnisleg skilyrði fyrir notkun léna til að sporna við svikastarfsemi. „Ráðuneytið vekur athygli á því að niðurstaka léna vegna þess efnis sem þar er birt er afar flókið og viðkvæmt álitamál sem snýr að grundvallarréttindum borgaranna, svo sem tjáningarfrelsi, og því þarf að gæta sérstakrar varfærni við meðferð slíkra mála.“ Lokun léns þýðir ekki að vefsíðu sé lokað eða hún tekin niður. Að sögn ISNIC getur sama vefsíðan verið tengd við mörg lén og lén tengd við fleiri hluti en vefsíður, til að mynda tölvupóst. ISNIC er ekki hýsingaraðili en hefur heimild til að loka léni samkvæmt lögum um íslensk landshöfuðlén ef skráningarupplýsingar eru augljóslega rangar eða ófullnægjandi. Lögregla getur einnig krafist þess að undangengnum dómsúrskurði ef skilyrði til þess eru uppfyllt. Þau eru meðal annars að rétthafi léns hafi náin tengsl við skipulagða brotastarfsemi eða ef lénið er notað til að miðla ólöglegu efni eða efni sem hvetur til refsiverðrar háttsemi. Að sögn lögreglu er engin fyrirliggjandi tölfræði um aðkomu lögreglu að málum er varða erlendar síður sem eru hýstar á Íslandi eða eru undir íslensku léni. Of lítil tengsl við Ísland Persónuvernd hefur farið fram á að vefsíðu yrði lokað vegna birtingar upplýsinga um erlenda einstaklinga. Sá úrskurður féll árið 2018. Sú vefsíða var hins vegar hýst á Íslandi og beindist ákvörðunin þá að íslensku hýsingarfyrirtæki. Persónuverndarlögum hefur verið breytt síðan þá og því alls óvíst að ákvörðunin yrði sú sama í dag. Samkvæmt upplýsingum frá Persónuvernd er lítið hægt að aðhafast í tilvikum sem þessum, þó að þau falli undir persónuverndarlög hér á landi, því tengslin við Ísland eru einfaldlega of lítil.