Einn leikur var í Bestu deild karla í dag. ÍA og Víkingur skildu jöfn á Akranesi, 2-2. Fyrri hálfleikur var fjörugur og bæði lið fengu færi í upphafi leiks. Það voru þó Skagamenn sem bitu fyrr frá sér, þeir stálu þá boltanum af Víkingum á 38. mínútu og Gísli Laxdal Unnarsson skoraði. Víkingar fengu víti þremur mínútum síðar þegar Erik Tobias fékk boltann í höndina í eigin vítateig. Helgi Guðjónsson skoraði af öryggi úr vítaspyrnunni og allt var jafnt í hálfleik, 1-1. Hasarinn var ekki minni í seinni hálfleik og á 57. mínútu átti Gísli Laxdal stórgóða fyrirgjöf sem nafni hans Gísli Eyjólfsson stangaði í netið og Skagamenn aftur komnir yfir. Aftur lifði forystan skammt því Gylfi Sigurðsson átti skot á 59. mínútu sem fór af varnarmanni og í markið. Tæpum tíu mínútum síðar komst Gísli Eyjólfsson inn í sendingu á Oliver Ekroth sem braut í kjölfarið á Gísla og, þar sem hann var aftasti varnarmaður, fékk að líta rauða spjaldið. Gísli Eyjólfsson kom meira við sögu, á 84. mínútu fékk hann aftur aukaspyrnu en skallaði í kjölfarið Davíð Atlason í klofið og nú fékk Gísli beint rautt spjald og þá aftur jafnt í liðum. Mörkin urðu þó ekki fleiri og 2-2 varð niðurstaðan. Víkingar eru sem fyrr á toppi deildarinnar, nú með 44 stig eða sjö stigum meira en Fram. ÍA er í sjötta sæti með 19 stig líkt og Valur og Keflavík sem eiga þó leik til góða. Staðan í deildinni .