Skagamenn fagna marki gegn Fram fyrr í sumar. Framherjarnir tveir Viktor og Gabríel sáu um mörkin í dag.Mummi Lú ÍA vann Þór 1-2 í Bestu deild karla í fótbolta. Þar með fer ÍA upp í 6. sæti úr því tíunda. Þór er í 9. sæti. Viktor Jónsson kom Skagamönnum yfir eftir aukaspyrnu. Guðmundur Þórarinsson sveiflaði vinstri fæti og fann Viktor á fjærstönginni sem skoraði með flugskalla eftir 37 mínútur. Markús Páll Ellertsson óð inn á teiginn og Aron Birkir í marki Þórs náði ekki að halda föstu skoti hans. Þetta var sjötta mark hans í sex leikjum. Affi minnkaði muninn með skallamarki í slána og inn eftir hornspyrnu á 55. mínútu. Affi braut á Markúsi Páli skömmu síðar innan teigs. Aron Birkir varði hins vegar vítaspyrnu Viktors Jónssonar virkilega vel á 57. mínútu.