Víkingur vann KA 3-2 í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld. Aron Elís Þrándarson kom Víkingi yfir í 1-0 á 5. mínútu en Hallgrímur Mar Steingrímsson skoraði svo tvisvar sinnum í fyrri hálfleik fyrir KA og sá til þess að Akureyrarliðið var yfir í hálfleik. KA-menn voru farnir að láta sig dreyma um kærkominn sigur, en allt kom fyrir ekki. Aron Elís Þrándarson jafnaði í 2-2 fyrir Víking á 81. mínútu og þegar komið var fram í uppbótartíma leiksins braut Kári Gautason í liði KA á leikmanni Víkings innan vítateigs og Víkingur uppskar vítaspyrnu. Gylfi Þór Sigurðsson skoraði úr henni og sá til þess að Víkingur vann 3-2. Víkingur varð þó fyrir blóðtöku í leiknum þegar Aron Snær Friðriksson markvörður liðsins fór meiddur af velli í seinni hálfleik. Ögmundur Kristinsson spilaði þar með sinn fyrsta leik í Víkingstreyjunni í kvöld. Víkingur treysti því enn frekar stöðu sína á toppi deildarinnar og hefur nú 40 stig eftir fjórtán leiki. KA er hins vegar komið í bráða fallbaráttu. KA er í 10. sæti með 10 stig eftir þrettán leiki. Nágrannar KA í liði Þórs eru sæti neðar og þar með í fallsæti með átta stig en FH sem á leik til góða á Akureyrarliðin situr á botninum með sjö stig.