Innlent | Morgunblaðið | 2.8.2026 | 7:50 Vélarnar sagðar veita vaxtarfæri Vélarnar tíu eru búnar Pratt & Whitney-hreyflum og eru af árgerðum 2018 til 2020. mbl.is/Árni Sæberg Gunnlaugur Snær Ólafsson [email protected] Setja bókamerki Engar ákvarðanir hafa verið teknar um þróun fjölda flugvéla í flota Icelandair. Þetta segir Tómas Ingason, framkvæmdastjóri tekju-, þjónustu- og markaðssviðs Icelandair, í svari við spurningu um hvort nýr samningur um leigu sex Airbus-véla af gerðinni A320neo leiði til þess að hætt verði notkun annarra véla. „Það mun ráðast síðar út frá ákvörðunum um heildarframboð. Þessi ákvörðun gefur okkur sveigjanleika til að vaxa og styður þannig við framtíðaráætlanir félagsins um að halda áfram að þróa leiðakerfið okkar. Sveigjanleiki til að minnka framboð ef aðstæður kalla á er einnig til staðar í gegnum möguleg skil eða sölu véla sem þegar eru í flotanum,“ segir Tómas. Icelandair tilkynnti nýverið um leigusamninga við flugvélaleigusalann Aircastle um leigu á fyrrnefndum sex flugvélum sem verða teknar í rekstur fyrir sumarið 2028. Þetta er til viðbótar við leigu á fjórum flugvélum af sömu tegund frá leigusalanum AviLease sem tilkynnt var um á dögunum að kæmu inn í flotann vorið 2027. Vélarnar tíu eru búnar Pratt & Whitney-hreyflum og eru af árgerðum 2018 til 2020. Innleiðing þessara Airbus-flugvéla er sögð hluti af umfangsmikilli endurnýjun flugflota Icelandair. Frétt af mbl.is Sex nýjar Airbus-þotur til Icelandair Hápunktur í ágúst Spurður um horfurnar í ljósi sveiflna í heimshagkerfinu svarar Tómas að bókunarstaðan sé sterk og horfurnar góðar fyrir þriðja ársfjórðung. „Eftirspurn er mikil til og frá Íslandi, og nær hápunkti til Íslands í kringum sólmyrkvann í ágúst. Rekstrarumhverfið hefur verið krefjandi, sérstaklega vegna mikillar hækkunar eldsneytisverðs en við höfum náð góðum árangri á mörgum sviðum. Við höfum brugðist við með ýmsum hætti, meðal annars með kostnaðaraðhaldi, aðlögun á framboði og að hætta notkun Boeing 757-flugvéla fyrr en áætlað var. Eins og flutningatölur okkar sýna hefur sætanýting verið mjög góð og með því hæsta sem við höfum séð.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Vélarnar sagðar veita vaxtarfæri Gervigreindin hefur aldrei lent í ástarsorg Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Var vöruð við fyrir andlátið Bollakökur með bönunum, hnetusmjöri og súkkulaði Umræðan Margbrotinn Ódysseifur Þrautir í Ceuta Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Fjórtán ábendingar borist um minka á ferð „Guð gaf okkur gott veður“ Skýrslutökur í varðskipi Mest lesið Í gær Í vikunni Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Óskuðu eftir óþarfa leyfi frá Landhelgisgæslunni Alelda sumarhús við Þingvallavatn Myndir: Akureyrarvöllur að fyllast Einn vann 11 milljónir Unnið að mótefni gegn ofnæminu Athugasemdir við málsmeðferð Guðmundur Felix með krabbamein „Vonast til að sjá allt að 10.000 manns“ Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Catherine vildi ekki fylgja foreldrunum í dauðann Guðmundur Felix með krabbamein Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Koma til Íslands að vinna Andlát: Einar Sindrason „Vonast til að sjá allt að 10.000 manns“ Fer fram á brottvísun og endurkomubann Myndir: Vinna að því að klófesta lausa minka Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Bandero siglir utan í skip Hvals Íslendingum sendur tónninn Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Saklaus læknatími endaði með innlögn Gunnar Þórðarson er látinn Nýjast á mbl.is » Vélarnar sagðar veita vaxtarfæri Gervigreindin hefur aldrei lent í ástarsorg Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Var vöruð við fyrir andlátið Bollakökur með bönunum, hnetusmjöri og súkkulaði Umræðan Margbrotinn Ódysseifur Þrautir í Ceuta Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Aldrei liðið að öryggi manna að störfum sé ógnað Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll Mest lesið Í gær Í vikunni Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Óskuðu eftir óþarfa leyfi frá Landhelgisgæslunni Alelda sumarhús við Þingvallavatn Myndir: Akureyrarvöllur að fyllast Einn vann 11 milljónir Unnið að mótefni gegn ofnæminu Athugasemdir við málsmeðferð Guðmundur Felix með krabbamein „Vonast til að sjá allt að 10.000 manns“ Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Catherine vildi ekki fylgja foreldrunum í dauðann Guðmundur Felix með krabbamein Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Koma til Íslands að vinna Andlát: Einar Sindrason „Vonast til að sjá allt að 10.000 manns“ Fer fram á brottvísun og endurkomubann Myndir: Vinna að því að klófesta lausa minka Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Bandero siglir utan í skip Hvals Íslendingum sendur tónninn Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Saklaus læknatími endaði með innlögn Gunnar Þórðarson er látinn