Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Icelandair leigir sex Airbus-þotur til viðbótar

Read Full Article →

Icelandair hefur undirritað leigusamninga við flugvélaleigusalann Aircastle um leigu á sex Airbus A320neo flugvélum. Þær verða teknar í rekstur fyrir sumarið 2028. Á dögunum tilkynnti flugfélagið að það hefði leigt fjórar þotur sömu gerðar af leigusalanum AviLease. Þær koma inn í flotann næsta vor. Auk þess eru þrjár nýjar A321LR-flugvélar væntanlegar frá Airbus næsta vetur. Nú þegar eru sjö Airbus-vélar í flota flugfélagsins. Þær verða því orðnar 20 eftir um tvö ár. „Innleiðing þessara Airbus flugvéla er hluti af umfangsmikilli endurnýjun flugflota Icelandair,“ segir í tilkynningu sem Icelandair sendi til kauphallarinnar í gærkvöld. Hún hefur einkum falist í kaupum á Boeing 737 MAX og Airbus A320-vélum. Á móti hefur félagið flýtt útfösun á Boeing 757 og 767-flugvélum. Gert er ráð fyrir að þær verði horfnar úr flotanum í janúar. „Við höldum áfram að fjárfesta í umfangsmikilli endurnýjun flugflotans og fögnum nýju samstarfi við Aircastle og AviLease. Á næsta ári munum við ná þeim merka áfanga að allt farþegaflug félagsins verður flogið á nýrri kynslóð flugvéla sem nýta allt að 30% minna eldsneyti á hvert sæti en eldri tegundir,“ er haft eftir Boga Nils Bogasyni forstjóra Icelandair í tilkynningunni.

Share this article