Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Icelandair tryggir sér sex A320neo þotur á leigu

Read Full Article →

Icelandair hefur undirritað leigusamninga við flugvélaleigusalann Aircastle um leigu á sex Airbus A320neo flugvélum sem verða teknar í rekstur fyrir sumarið 2028, að því er kemur fram í tilkynningu Icelandair til Kauphallarinnar. Þetta er til viðbótar við leigu á fjórum flugvélum af sömu tegund frá leigusalanum AviLease sem tilkynnt var um á dögunum að kæmu inn í flotann vorið 2027. Vélarnar tíu eru búnar Pratt & Whitney hreyflum og eru af árgerðum 2018-2020. Félagið rekur nú sjö Airbus vélar. Auk þess eru þrjár nýjar A321LR flugvélar væntanlegar frá Airbus næsta vetur. Þegar þessar tíu A320neo flugvélar hafa bæst við mun Airbus floti félagsins telja 20 flugvélar. „Innleiðing þessara Airbus flugvéla er hluti af umfangsmikilli endurnýjun flugflota Icelandair en undanfarinn áratug hefur félagið fjárfest í nýrri kynslóð sparneytnari Boeing 737 MAX og Airbus A320 fjölskyldu flugvéla,“ segir í tilkynningu Icelandair. „Á móti hefur félagið flýtt útfösun á Boeing 757 og 767 flugvélum en gert er ráð fyrir að hætta notkun þeirra í farþegaflugi frá og með janúar 2027.“ „Við höldum áfram að fjárfesta í umfangsmikilli endurnýjun flugflotans og fögnum nýju samstarfi við Aircastle og AviLease. Á næsta ári munum við ná þeim merka áfanga að allt farþegaflug félagsins verður flogið á nýrri kynslóð flugvéla sem nýta allt að 30% minna eldsneyti á hvert sæti en eldri tegundir,“ segir Bogi Nils Bogason , forstjóri Icelandair. „Jafnframt styður flotaendurnýjunin við markmið okkar um að efla leiðakerfið, einfalda flotann og veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu og ferðaupplifun.“

Share this article