Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Fram hafði betur á Þjóðhátíð

Read Full Article →

Fram vann ÍBV í eina leik dagsins í Bestu deild karla í fótbolta, 1-2. Eyjamenn fá gjarnan heimaleik á Þjóðhátíð og engin breyting varð á í ár. Það voru þó gestirnir sem voru sterkari í fyrri hálfleik og á 16. mínútu átti Freyr Sigurðsson fyrirgjöf sem Ægir Jarl Jónasson potaði áfram. Sigurður Arnar Magnússon reyndi að bjarga en setti boltann þess í stað í eigið net, 1-0 fyrir Fram. Sigurður Arnar vill líklega gleyma þessum fyrri hálfleik sem fyrst því á 43. mínútu braut hann á Vuk Oskari Dimitrijevic inni í vítateig og vítaspyrna dæmd. Úr henni skoraði Freyr Sigurðsson og gestirnir voru tveimur mörkum yfir í hálfleik. Heimamenn komu betur út í seinni hálfleikinn og á 77. mínútu fengu þeir vítaspyrnu eftir brot Israels Garcia Moreno á Sesari Erni Harðarsyni. Vicente Valor tók spyrnuna og skoraði, 2-1. Rúnar Kristinsson, þjálfari Framara, fékk að líta rauða spjaldið fyrir mótmæli en Framarar héldu út og unnu 2-1. Með sigrinum fer Fram í annað sæti deildarinnar, tveimur stigum ofar en KR sem sækir FH heim á miðvikudag en FRAM og KR mætast svo í næstu umferð. Eyjamenn eru sem fyrr í áttunda sæti með 16 stig, þremur stigum fyrir ofan fallsvæðið. Staðan í deildinni .

Share this article