Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

ÍBV jafnaði í uppbótartíma – Þægilegt hjá Fram gegn Val

Read Full Article →

Þrír leikir voru í Bestu deild kvenna í kvöld þegar þrettánda umferðin kláraðist: Leikir kvöldsins: ÍBV 2-2 FH Breiðablik 2-0 Þór/KA Fram 4-1 Valur Misstu niður tveggja marka forystu Topplið FH komst í 2-0 á móti ÍBV með mörkum Hrannar Haraldsdóttur á 33. mínútu og Ingibjargar Magnúsdóttur á 45. mínútu. Eyjakonur gáfust þó ekki upp og minnkuðu muninn á 59. mínútu með sjálfsmarki Andreu Ránar Snæfeld Hauksdóttur. Allison Grace Lowrey jafnaði svo í uppbótartíma og liðin skildu jöfn, 2-2. Breiðablik einu marki frá toppnum Blikar er í toppbaráttu við FH-inga og jöfnuðu þær að stigum með 2-0 sigri á Þór/KA. Ólöf Sigríður Kristinsdóttir kom þeim yfir á 3. mínútu en bæði lið klúðruðu vítaspyrnu í fyrri hálfleik. Fyrst Agla María Albertsdóttir fyrir Breiðablik og svo Margrét Árnadóttir fyrir Norðankonur. Ólöf Sigríður skoraði annað mark sitt á 53. mínútu og tryggði þannig sigurinn. FH og Breiðablik eru bæði með 30 stig en FH er með betri markatölu þó það muni bara einu marki. Ekkert gengur hjá Valskonum Í Úlfarsárdal höfðu heimakonur í Fram betur gegn Val, 4-1. Sara Svanhildur Jóhannsdóttir kom Frömurum yfir 33. mínútu og 1-0 stóð í hálfleik. Margrét Brynja Kristinsdóttir jafnaði leikinn á 49. mínútu en þá svaraði Fram með þremur mörkum. Alda Ólafsdóttir á 52. mínútu, Katrín S. Vilhjálmsdóttir tveimur mínútum síðar og loks Taylor Marie Hamlett á 63. mínútu. Fram er komið í sjötta sæti með 16 stig, Valur er á botninum með 10 stig en þetta var þriðji tapleikur liðsins í röð. Staðan í Bestu deild kvenna.

Share this article