Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Botnlið Fram vann Breiðablik og FH á toppinn

Read Full Article →

Fyrir leiki kvöldsins var Breiðablik á toppi Bestu deildarinnar með 21 stig, stigi meira en FH sem var í 2. sæti. FH kláraði sinn leik í kvöld með stæl og vann Þrótt 7-3. Ída Marín Hermannsdóttir fór á kostum í leiknum og skoraði fimm fyrstu mörk FH-inga í leiknum. Deja Sandoval og Berglind Freyja Hlynsdóttir skoruðu hin mörkin en fyrir Þrótt komu tvö mörk frá Alexiu Marin Czerwien og eitt frá Þórdísi Elvu Ágústsdóttur. Á sama tíma gerðist nokkuð sem fáir bjuggust við, því botnlið Fram vann Breiðablik sem hafði verið á toppnum. Taylor Marie Hamlett kom Fram í 1-0 á tíundu mínútu áður en Edith Kristín Kristjánsdóttir jafnaði fyrir Blika í 1-1 á 19. mínútu. Líf Joostdóttir van Bemmel kom Breiðabliki svo í 2-1 á 24. mínútu en þar með var björninn alls ekki unninn. Hamlett jafnaði fyrir Fram í 2-2 á 73. mínútu og Harpa Helgadóttir reyndist svo hetja Fram þegar hún skoraði sigurmarkið á 89. mínútu og Fram vann 3-2. Fram er þó eftir sem áður á botni deildarinnar, en nú með sjö stig, tveimur stigum frá Val sem er í 8. sæti. Valur á þó leik til góða. Þór/KA vann Grindavík/Njarðvík 1-0 þar sem Margrét Árnadóttir skoraði sigurmark Akureyringa strax á þriðju mínútu. Þór/KA er í 9. sæti með níu stig. ÍBV vann svo 3-1 útisigur á Víkingi. Alison Grace Lowry, Olga Sevcova og Allison Clark skoruðu mörk eyjameyja en Arna Ísold Stefánsdóttir skoraði mark Víkings.

Share this article