Búið er að mála regnbogafánann aftur á tröppurnar framan við Grafarvogskirkju. Íslenski fáninn var málaður yfir regnbogafána sem prýddi tröppurnar 8. júlí. Garðaþjónusta Sigurjóns greindi frá þessu á Facebook-síðu sinni í dag. Fáninn var aðeins málaður framan á tröppurnar til þess að koma í veg fyrir að hálka myndist á þrepunum sjálfum. Málningin var hreinsuð af daginn eftir að skemmdarverkið var framið. Til stóð að mála regnbogafánann aftur á tröppurnar um leið og færi gæfist og tækifærið var gripið í góðviðrinu í dag.