Innlent | mbl | 8.7.2026 | 11:00 Máluðu íslenska fánann yfir regnbogafánann Lögregla hefur girt tröppurnar af. Útför fer fram frá Grafarvogskirkju í dag. mbl.is/Eyþór Ólafur Pálsson [email protected] Setja bókamerki Óprúttnir aðilar tóku sig til í skjóli nætur og máluðu íslenska fánann yfir pride-fánann, sem er oft kallaður regnbogafáninn, sem prýtt hefur tröppurnar niður að Grafarvogskirkju í Reykjavík. Verknaðurinn hefur verið tilkynntur til lögreglu. Arna Ýrr Sigurðardóttir, sóknarprestur í Grafarvogskirkju, segir verknaðinn hafa valdið skemmdum. „Tröppurnar eru blautar og það er jarðarför í dag. Málning hefur borist á líkbílinn sem ók yfir blauta málninguna.“ Hvatning til að lappa upp á fánann Fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott, eins og skáldið ritaði forðum en sóknarpresturinn segir verknaðinn vera hvatningu til kirkjunnar að ráðast í að lappa upp á fánann, sem staðið hefur til í einhvern tíma. „Við höfum boðið fólki að koma og hjálpa okkur. Það hefur alltaf verið rosa góður hópur af fólki sem hefur komið og þetta hefur verið alveg ótrúlega skemmtilegur viðburður. Við munum gera það núna. Það þarf bara að viðra auk þess að kirkjan er náttúrulega mjög ásetin vegna jarðarfara og annars þannig að við höfum ekkert mjög marga glugga.“ Pride-fáninn hefur prýtt tröppurnar niður að Grafarvogskikju um allnokkurt skeið. Ljósmynd/Grafarvogskirkja Arna, sem stödd er erlendis, fékk veður af verknaðinum í gegnum blaðamann í morgun en Rúv greindi fyrst frá. „Ég fékk bara upphringingu frá blaðamanni. Það var enginn kominn í kirkjuna þegar ég fékk símtalið og ég var nú að vona að myndinni hefði verið breytt með hjálp gervigreindar eða einhverju svoleiðis en það reyndist ekki raunin.“ Frétt af mbl.is Antikristur yfir regnbogann hjá Grafarvogskirkju Hafið þið girt svæðið af vegna þessarar útfarar sem er í dag? „Mér skilst það. Það er ekki hægt að ganga tröppurnar því þær eru blautar. Þær eru náttúrulega bara hættulegar og fyrir utan það að það bara má ekki ganga á íslenska fánanum,“ segir sóknarpresturinn kíminn um þá staðreynd að óprúttnir aðilar hafi málað íslenska fánann yfir pride-fánann, sem prýtt hefur tröppurnar niður að Grafarvogskirkju um allnokkurt skeið. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem skemmdarverk hafa verið unnin á pride-fánanum við kirkjuna en hann var fyrir um fjórum árum merktur Antikristi með spreyi úr spreybrúsa. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Landsliðskona til Grindavíkur Í forsetaframboð án staðsetningartækis Olíuverð hækkar um 5% í kjölfar ummæla Trumps Máluðu íslenska fánann yfir regnbogafánann Hótar að hætta öllum viðskiptum við Spán Umræðan Aukin alþjóðaviðskipti Þjóðaratkvæðagreiðsla í ágúst Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Stórstjarna sem skaut á heilagar kýr Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Íslensk börn verr sett en evrópsk Skuldaþróun skárri á Íslandi en í ESB Mest lesið Í gær Í vikunni Nálgunarbanns krafist Skapar óviðunandi hættuástand Hvað sögðu ungir eftir fund Áfram Íslands? Bjóða peninga fyrir upplýsingar um hvalveiðiskipin Rannsókn lokið eftir 20 mánuði Einn ákærðra fékk ríkisborgararétt eftir mótmæli Áfram nærri 22 gráða hiti Sögulegt skip til sýnis í Reykjavíkurhöfn Sleppingar auka ekki laxagöngur Hitinn um og yfir 20 stig á Austurlandi Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Andlát: Megas Einn ákærðra fékk ríkisborgararétt eftir mótmæli Brúin yfir Þjórsá lokuð Hvetur konur til að byggja upp vöðva Myndskeið: Hífðu ökumanninn úr Þjórsá Óökufær ökutæki geymd á Eiðistorgi Lögmaður og fangavörður enn með stöðu sakbornings Skemman varð fljótt alelda Hringveginum lokað á morgun Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk Hviður geta náð 30 metrum á sekúndu Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Nýjast á mbl.is » Landsliðskona til Grindavíkur Í forsetaframboð án staðsetningartækis Olíuverð hækkar um 5% í kjölfar ummæla Trumps Máluðu íslenska fánann yfir regnbogafánann Hótar að hætta öllum viðskiptum við Spán Umræðan Aukin alþjóðaviðskipti Þjóðaratkvæðagreiðsla í ágúst Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Óökufær ökutæki geymd á Eiðistorgi Íslensk börn verr sett en evrópsk Dæmdur fyrir nauðgun: Lögreglan vopnaðist Íran gerði árásir á bandarískar herstöðvar Mest lesið Í gær Í vikunni Nálgunarbanns krafist Skapar óviðunandi hættuástand Hvað sögðu ungir eftir fund Áfram Íslands? Bjóða peninga fyrir upplýsingar um hvalveiðiskipin Rannsókn lokið eftir 20 mánuði Einn ákærðra fékk ríkisborgararétt eftir mótmæli Áfram nærri 22 gráða hiti Sögulegt skip til sýnis í Reykjavíkurhöfn Sleppingar auka ekki laxagöngur Hitinn um og yfir 20 stig á Austurlandi Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Andlát: Megas Einn ákærðra fékk ríkisborgararétt eftir mótmæli Brúin yfir Þjórsá lokuð Hvetur konur til að byggja upp vöðva Myndskeið: Hífðu ökumanninn úr Þjórsá Óökufær ökutæki geymd á Eiðistorgi Lögmaður og fangavörður enn með stöðu sakbornings Skemman varð fljótt alelda Hringveginum lokað á morgun Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk Hviður geta náð 30 metrum á sekúndu Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi