Vísitala leiguverðs hefur hækkað um 5,7% undanfarið ár, umtalsvert meira en vísitala íbúðaverðs sem hefur hækkað um 1,8% yfir sama tímabili. Verðbólga mældist 5,2% yfir sama tímabil. Agnar Tómas Möller, fyrrverandi sjóðstjóri hjá Kviku eignastýringu, viðraði áhyggjur af því í nýjum hlaðvarpsþætti Þjóðmála að það sem kunni að skýra mikla hækkun vísitölu leiguverðs sé að töluvert af nýjum eignum séu að koma inn á leigumarkaðinn en aðferðafræði HMS gæðaleiðrétti ekki eignir. „Þetta er ofboðslega mikil skekkja innifalin í húsnæðisliðnum akkúrat núna sem er að stríða okkur.“ Agnar benti á að vísitalan fylgi í dag tugþúsundum leigusamningum sem í mörgum tilfellum fylgi vísitölu neysluverðs. Framboðið á leigumarkaðnum hafi aukist að undanförnu þar sem byggingaraðilar væru margir að reyna að koma eignum sem eru ekki að seljast í leigu. Hann tók dæmi um að þetta gætu verið íbúðir sem kosti á bilinu 1,0-1,2 milljónir króna á fermetrann en leigan sé sambærileg eða örlítið hærri en t.d. íbúðir í Breiðholti sem kosti kannski í kringum 600 þúsund krónur á fermetrann. „Ég heyri það alls staðar að það er í rauninni bara pressa niður á við á leigumarkaði. Það er verið að semja um mikið af leigusamningum á eignum sem eru mun gæðameiri. Það er ekki verið að gæðaleiðrétta þessa vísitölu.“ Verðbólguvæntingar væru mun lægri með gömlu aðferðinni Hann setti þetta í samhengi við breytingar sem gerðar voru á reiknuðu húsaleigunni í vísitölu neysluverðs í júní 2024. Hagstofan tók þá upp aðferð húsaleiguígilda í stað aðferð einfalds notendakostnaðar, sem miðaði við útreikning á reiknaðri húsaleigu. Sú aðferð felst í því að leggja mat á fjárhæð leigu sem húsnæðiseigendur þyrftu að greiða fyrir fasteignina ef þeir væru á leigumarkaði. Sjá einnig Tímasetningin á breyttum húsnæðislið mistök „Ég hef nú unnið það lengi á þessum skuldabréfamarkaði að ég væri nú frekar fullviss um það að ef við værum með gömlu vísitöluna þá væru verðbólguvæntingarnar örugglega svona 1-2 prósentum lægri í dag,“ sagði Agnar. Heiðar Guðjónsson, fjárfestir og stjórnarformaður Íslandsbanka, tók undir þetta og sagði að tímasetningin á þessari breytingu á húsnæðisliðnum hafi komið á „versta mögulega tíma eins og ríkisvaldinu einu er lagið“. „Þannig að við tókum alla hækkunina á húsnæðismarkaði og svo er skipt yfir í leiguverð sem er ekkert að lækka þegar húsnæðisverðið er raunverulega farið að lækka.“ Þess má geta að forsætisráðherra birti í janúar skýrslu um breytinguna á húsnæðisliðnum. Hagstofan sagði að ógjörningur væri að taka af öll tvímæli um hvort verðbólga væri meiri eða minni ef áfram hefði verið stuðst við gömlu aðferðina, þar sem mæling á vísitölunni sé ekki óháð frá einum mánuði til hins næsta.