Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Húsnæðisliðurinn veldur heila­brotum

Read Full Article →

Ár­staktur húsnæðisliðarins hækkaði í 6,8% í júlí þótt aðrir mæli­kvarðar bendi til kólnunar á fast­eigna­markaði. Grein­endur Kviku segjast „klóra sér í kollinum“ yfir þróuninni en telja hana ekki endi­lega boða nýtt verðbólgu­skeið. Hækkun húsnæðisliðarins í nýjustu verðbólgumælingu vekur at­hygli grein­enda Kviku banka, enda virðist hún ganga gegn öðrum vís­bendingum af fast­eigna­markaði. Húsnæðisliður vísitölu neyslu­verðs hækkaði um 0,6% í júlí og árs­hækkunin fór úr 6,6% í 6,8%. Hækkunin var lítil­lega meiri en Kvika hafði gert ráð fyrir. „Við klórum okkur raunar aðeins í kollinum yfir því að ár­staktur liðarins sé að sækja í sig veðrið, á sama tíma og verðvísar af fast­eigna­markaði hafa frekar verið í hjöðnun,“ segir í greiningu bankans. Kvika telur lík­legt að mælingin sé frekar tíma­bundið suð í mati Hag­stofunnar en merki um að húsnæðis­verðbólga sé tekin að aukast á ný. Grein­endur bankans segjast ekki sjá skýr merki um viðsnúning meðan aðrar tölur benda áfram til kólnunar. Gengur gegn öðrum mæli­kvörðum Kvika bendir á að hækkun leigu­verðs undan­farna tólf mánuði mælist 5,7% og hækkun íbúða­verðs 1,8%. Þá ætti verð­trygging leigu­samninga að toga árs­hækkun húsnæðisliðarins niður þegar al­menn verðbólga er minni en hækkun leigu­verðs. „Við getum fátt annað gert en klórað okkur í kollinum og vonað að sam­leitni verði með vísunum á næstu misserum,“ segir í greiningunni. Með sam­leitni er átt við að mæling Hag­stofunnar á húsnæðis­kostnaði og aðrir mæli­kvarðar á þróun leigu- og íbúða­verðs fari aftur að gefa svipaða mynd. Kvika telur þróun húsnæðisliðarins því valda meiri heila­brotum en beinum áhyggjum. Þrýstingur í húsnæði er þrálátur, en bankinn telur enn of snemmt að líta á eina mælingu sem merki um að kólnunin á fast­eigna­markaði sé gengin til baka. Valið stendur enn á milli tveggja kosta Eins og Við­skipta­blaðið greindi frá fyrr í dag telur Kvika júlímælinguna í heild ekki benda til aukins undir­liggjandi verðbólguþrýstings. Hækkun ár­s­verðbólgunnar úr 5,2% í 5,3% skýrist að mati bankans einkum af breyttu vægi ferðaþjónustu í vísitölunni en ekki auknum inn­lendum þrýstingi. Grein­endur bankans sjá jafn­framt engin skýr merki um að hækkun hrávöru­verðs hafi smitast út í al­menna launa- og verð­myndun. Mæli­kvarðar á undir­liggjandi verðbólgu hafi þvert á móti heilt yfir hjaðnað. Kvika telur því að næsta ákvörðun peninga­stefnu­nefndar Seðla­bankans muni áfram standa á milli óbreyttra vaxta og 25 punkta hækkunar. Júlímælingin leggist ekki skýrt á sveif með öðrum hvorum kostinum og niður­staðan standi enn á hnífs­egg.

Share this article