Verðbólga á evrusvæðinu jókst úr 2,8% í 2,9% milli júní og júlí, samkvæmt nýbirtum tölum Eurostat. Verðbólgumælingin var í samræmi við spár hagfræðinga. Kjarnaverðbólga, sem undanskilur vöruflokka í matvæla- og orkugeiranum, jókst úr 2,4% í 2,5%. Þá jókst svokölluð þjónustuverðbólga og mældist 3,3%. Í umfjöllun Reuters segir að verðbólgumælingin auki enn frekar líkurnar á að Seðlabanki Evrópu hækki stýrivexti við næstu vaxtaákvörðun bankans í september. Bent er þó á að í millitíðinni muni birtast önnur mæling fyrir ágústmánuð. Seðlabankinn, sem hélt stýrivöxtum óbreyttum í 2,25% í síðustu viku, hefur gefið sterklega til kynna að von sé á vaxtahækkun. Verðlagning á fjármálamörkuðum gefur til kynna að markaðsaðilar eigi von á tveimur stýrivaxtahækkunum hjá bankanum á næstunni. Verg landsframleiðsla á evrusvæðinu jókst um 0,4% á öðrum ársfjórðungi, tvöfalt meira en greiningaraðilar höfðu spáð, sem talið er að auki líkurnar á vaxtahækkun í september.