Verðbólga á evrusvæðinu jókst úr 3,0% í 3,2% milli apríl og maí og hefur ekki verið meiri síðan í september 2023. Verðbólgumælingin var í samræmi við spár hagfræðinga sem tóku þátt í könnun Reuters. Talið er að Seðlabanki Evrópu undirbúi að hækka stýrivexti í fyrsta sinn í nærri þrjú ár til að stemma stigu við verðbólguþrýsting sem rekja má að mestu til áhrifa stríðsátakanna í Miðausturlöndum, að því er segir í frétt Financial Times . Þetta er þriðji mánuðurinn í röð sem verðbólga hefur verið yfir 2% verðbólgumarkmiði seðlabankans. Seðlabanki Evrópu mun tilkynna um næstu stýrivaxtaákvörðun á fimmtudaginn í næstu viku, 11. júní. Verðlagning á skuldabréfamarkaði gefur til kynna að markaðsaðilar telji 95% líkur á að seðlabankinn hækki vexti um 25 punkta, upp í 2,25%.