Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Verðbólga hjaðnar á evrusvæðinu

Read Full Article →

Verðbólga hjaðnaði meira en búist var við í þremur stærstu hagkerfum evrusvæðisins í júní samkvæmt bráðabirgðatölum sem birtar voru á þriðjudag. Þróunin dregur úr líkum á að Seðlabanki Evrópu (ECB) telji þörf á að hækka stýrivexti á næstunni. Í Þýskalandi lækkaði ársverðbólga úr 2,7% í 2,4% en hagfræðingar höfðu að meðaltali spáð 2,5%. Kjarnaverðbólga stóð hins vegar í stað í 2,5%. Í Frakklandi lækkaði verðbólga úr 2,8% í 2,0% og náði þar með verðbólgumarkmiði ECB. Lækkunin skýrist einkum af um 5% lækkun orkuverðs auk þess sem verðbólga í þjónustu hjaðnaði og verð á iðnaðarvörum lækkaði. Á Ítalíu mældist verðbólga 3,1% samanborið við 3,2% í maí, þvert á spár um óbreytta verðbólgu. Spánn skar sig úr meðal stærstu hagkerfa evrusvæðisins. Þar stóð verðbólga í stað í 3,6% og reyndist meiri en spár gerðu ráð fyrir. Sérfræðingar gera nú ráð fyrir að heildarverðbólga á evrusvæðinu, sem birt verður á miðvikudag, geti orðið undir væntingum markaðarins. Samkvæmt könnun Reuters er miðgildisspáin 3,0%. Reuters hefur eftir Jack Allen-Reynolds, aðalhagfræðingur Capital Economics að hættan á óvæntri verðbólgu hafi minnkað verulega. Þótt verðbólguvæntingar séu enn nokkuð háar og orkuverð geti hækkað á ný telji hann enga brýna þörf á frekari vaxtahækkunum á næstunni. Lækkun orkuverðs síðustu daga hefur einnig dregið úr þrýstingi á stefnumótendur ECB fyrir vaxtaákvörðun bankans í júlí. Heimildir Reuters herma þó að enn sé til skoðunar hófleg vaxtahækkun síðar á árinu.

Share this article