Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Aðgerðum í Mosfellsdal miðar vel áfram

Read Full Article →

Innlent | mbl | 30.7.2026 | 17:59 | Uppfært 21:46 Aðgerðum í Mosfellsdal miðar vel áfram Frá Dalsbúi þar sem minkar sluppu í gærmorgun. mbl.is/Anton Brink Setja bókamerki Tengdar fréttir Minkar lausir í Mosfellsdal Börn verði ekki látin sofa úti í vögnum Segir málið óvenjulegt: Kæra á leiðinni „Alvarlegt brot gegn velferð þessara dýra“ Gríðarlegt tjón: „Þetta eru hryðjuverk“ Gríðarlega skaðlegt málstað dýravelferðar » Fleiri tengdar fréttir Í gær voru veiðimenn vinsamlegast beðnir um að mæta ekki upp í Mosfellsdal þar sem minkar sluppu úr búrum sínum í fjöldavís. Voru þeir frekar beðnir um að senda á undan sér tölvupóst og bjóða þannig upp á þjónustu sína. Hilmar Gunnarsson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, segir að full ástæða hafi verið fyrir því að fólk var beðið að veita ekki aðstoð við veiðarnar af sjálfsdáðum. „Það þótti ekki tilefni til þess að svo stöddu, við erum með sérþjálfaða hunda og fagfólk í þessu, við vildum ná utan um þetta svo þetta yrði nú ekki eins og í villta vestrinu,“ segir Hilmar. Upplýsingar hafi þó verið teknar niður hjá einhverjum þeirra veiðimanna sem mættu á svæðið og sjálfsagt sé að hafa samband við þá ef þörf er á frekari aðstoð. „Við vitum þá af aðilum þarna úti sem geta hoppað inn eða leyst af ef því er að skipta en við munum þá hafa samband að fyrra bragði.“ Hilmar Gunnarsson bæjarstjóri á vettvangi í gær. mbl.is/Hákon Frétt af mbl.is Veiðimenn beðnir um að mæta ekki á svæðið Minkar í Grafarvogi og Grafarholti Þess fyrir utan segir Hilmar að vel hafi gengið að ná utan um ástandið, færri ábendingar hafi borist um minka í nótt en búist var við og segist hann vongóður um það hvernig staðan sé orðin. „Við fengum ekki margar ábendingar í nótt, nema einhverjar hjálparhendur sem er jákvætt. Við lögðum einnig gildrur fyrir utan girðinguna og það kom ekki í þær. Nú er það bara ábendingakerfið og áfram gakk.“ Borist hafi tilkynning um mink í Grafarvogi og Grafarholti en mjög ólíklegt sé að um sé að ræða strokuminka frá Dalsbúi. Einhverjir hafa minkarnir verið gripnir um hálfan kílómetra frá búinu en Hilmar kveðst ekki vita til þess að minkar hafi tekið á rás í einhver langhlaup. Lögreglumenn með minkahræ. mbl.is/Anton Brink Ástandið ekki í líkingu við gærdaginn Enn mælir Hilmar með því að íbúar í dalnum haldi hænum og gæludýrum í öruggu skjóli og að láta börn ekki sofa úti í barnavögnum á meðan þessi staða er uppi. Annars horfi allt betur við og sér hann fram á að eftir helgi verði búið að ná enn betri tökum á ástandinu. Þangað til heldur vinna áfram við að skanna svæðið og gera það sem gera þarf. Búast má við því að heyra einn og einn byssuhvell á næstu dögum en þeim fer verulega fækkandi, „ástandið er ekkert í líkingu við það sem var í gær,“ segir Hilmar að lokum. Tengdar fréttir Minkar lausir í Mosfellsdal Börn verði ekki látin sofa úti í vögnum Segir málið óvenjulegt: Kæra á leiðinni „Alvarlegt brot gegn velferð þessara dýra“ Gríðarlegt tjón: „Þetta eru hryðjuverk“ Gríðarlega skaðlegt málstað dýravelferðar » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Myndir: Draumkennt sumarkjóla- og freyðivínshlaup Hjólaði 130 kílómetra fastur í sama gírnum Lygilegt hjá Sigurði og Færeyingunum Var í afneitun vegna versnandi heilsu Húsavík styrkir rafíþróttir Umræðan Áður en lagt er af stað Skoðum fyrst, ákveðum svo Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Lítið eftir“ af timburhúsinu í Stykkishólmi Enginn í haldi: Tilkynnt um minka í 5 km fjarlægð Gunnar Þórðarson er látinn Svara innbrotahrinunni með átaki og endurnýjun Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Skúli Steinar Pétursson Gunnar Þórðarson er látinn Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Bandero siglir utan í skip Hvals Fékk ný lungu eftir margra ára veikindi Mikið af mat fargað: „Ekki til fyrirmyndar“ Rændu heilum gámi af kampavíni Vélinni hlekktist á í lendingu: Situr pikkföst Myndir: Megas lagður til hinstu hvílu Beint: Megas jarðsunginn Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Vaknaði við minka í garðinum „Við erum alltaf að fá ný og ný vandamál í fangið“ Lætur af störfum sem forstjóri Hrafnistu Nokkur hundruð minka sluppu frá minkabúi Allt bendir til innbrots: 10 til 12 þúsund minkar „Þetta gæti farið verr en menn halda“ Nágranni: Mun hafa áhrif á öll dýr í mörg ár „Hrein og bein hryðjuverk á íslenskri náttúru“ „Þetta er ófremdarástand“ Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Gunnar Þórðarson er látinn Nýjast á mbl.is » Myndir: Draumkennt sumarkjóla- og freyðivínshlaup Hjólaði 130 kílómetra fastur í sama gírnum Lygilegt hjá Sigurði og Færeyingunum Var í afneitun vegna versnandi heilsu Húsavík styrkir rafíþróttir Umræðan Áður en lagt er af stað Skoðum fyrst, ákveðum svo Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Bandero siglir utan í skip Hvals Vélinni hlekktist á í lendingu: Situr pikkföst „Verðum bara eitthvað peð þegar bjátar á“ Gekkst undir lungnaígræðslu 27 ára Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Skúli Steinar Pétursson Gunnar Þórðarson er látinn Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Bandero siglir utan í skip Hvals Fékk ný lungu eftir margra ára veikindi Mikið af mat fargað: „Ekki til fyrirmyndar“ Rændu heilum gámi af kampavíni Vélinni hlekktist á í lendingu: Situr pikkföst Myndir: Megas lagður til hinstu hvílu Beint: Megas jarðsunginn Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Vaknaði við minka í garðinum „Við erum alltaf að fá ný og ný vandamál í fangið“ Lætur af störfum sem forstjóri Hrafnistu Nokkur hundruð minka sluppu frá minkabúi Allt bendir til innbrots: 10 til 12 þúsund minkar „Þetta gæti farið verr en menn halda“ Nágranni: Mun hafa áhrif á öll dýr í mörg ár „Hrein og bein hryðjuverk á íslenskri náttúru“ „Þetta er ófremdarástand“ Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Gunnar Þórðarson er látinn

Share this article