Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Minkurinn tekur sér ekki frí yfir versló“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 31.7.2026 | 10:57 „Minkurinn tekur sér ekki frí yfir versló“ Bæjarstjóri Mosfellsbæjar segir aðgerðum miða vel á Dalsbúi. mbl.is/Hákon Flóki Larsen [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Minkar lausir í Mosfellsdal Þrjótarnir skildu ekki eftir bréf Aðgerðum í Mosfellsdal miðar vel áfram Börn verði ekki látin sofa úti í vögnum Segir málið óvenjulegt: Kæra á leiðinni „Alvarlegt brot gegn velferð þessara dýra“ » Fleiri tengdar fréttir „Okkar fólk verður á vakt alla helgina. Við sláum ekki slöku við. Minkurinn tekur sér ekki frí yfir versló.“ Þetta segir Hilmar Gunnarsson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, í samtali við mbl.is. „Þetta eru mjög mikilvægir dagar núna svo að við þurfum ekki að standa í þessu einhver ár fram í tímann,“ segir hann um innbrotið í Dalsbú, síðasta minkabú landsins, í Mosfellsbæ. Hundruð minka léku þar lausum hala en tekist hefur að ná nokkuð góðri stjórn á aðstæðum að sögn bæjarstjórans. Færri og færri minkar fara í gildrur við búið eftir því sem tímanum vindur fram. Frétt af mbl.is Þrjótarnir skildu ekki eftir bréf Hilmar Gunnarsson bæjarstjóri á vettvangi við Dalsbú. Hundruðum minka var sleppt úr búrum sínum í Mosfellsbæ á miðvikudag. mbl.is/Hákon Nóttin róleg Hvernig ganga aðgerðir á staðnum? „Það gengur bara vel. Nóttin var bara mjög róleg. En annars erum við að fara að hittast klukkan hálftólf og taka stöðuna. Það er minkahópur sem við höfum sett saman hér í Mosó. Við verðum að reyna að ná utan um þetta allt saman sem fyrst,“ segir Hilmar. Er það þín tilfinning að þið hafið náð einhverri stjórn á þessu? „Já, ég myndi nú segja það. Það komu einhverjar tilkynningar fjarri búinu en það er bara villtur minkur sem er búið að veiða núna,“ segir bæjarstjórinn. „Það er náttúrulega minkur í sveitum, ekki bara í Mosfellsbæ,“ bætir hann við. Hilmar segir fólk vera á varðbergi gagnvart minkum núna þegar málið á Dalsbúi hefur verið í hámæli. Hann segir minka hafa fundist í nærumhverfi Mosfellsbæjar, eins og til dæmis á Korpúlfsstaðagolfvellinum. Frétt af mbl.is Aðgerðum í Mosfellsdal miðar vel áfram Vel hefur gengið að ná minkum sem sleppt var úr búrum sínum á miðvikudag. mbl.is/Hákon Ekki minkar frá Dalsbúi „Það er ekkert óeðlilegt en tengist þessu máli bara ekki neitt,“ segir hann. Hilmar segir að minkateymið, sem hefur unnið að því að aflífa minka í Mosó, hafi í tilfellum sem þessum farið á staðinn og veitt minkinn. „Það er ágætt að nota mannskapinn sem er hér,“ segir hann. Hilmar segist aðspurður vera alveg viss um að þarna sé ekki um minka frá Dalsbúi að ræða heldur villta minka sem meindýraeyðar hafi greint sem slíka. Hann segir villtu minkana hafa verið veidda með öðrum aðferðum en með byssuskotum. „Við erum ekki með skytturnar í byggð. Það eru bara notaðar gildrur og hávar og hundar.“ Frétt af mbl.is Börn verði ekki látin sofa úti í vögnum Minkarnir voru á víð og dreif um lóð Dalsbúsins. mbl.is/Árni Sæberg Hafa íbúar lent í vandræðum vegna minkanna? „Nei, það er ekkert staðfest tilvik úr byggð sem er jákvætt. Við bara krossum fingur,“ svarar Hilmar. „Og lítið sem er að koma í þessar gildrur sem við erum með. Við erum með einhverjar tíu gildrur þarna umhverfis svæðið uppi í dal. En allur varinn góður. En við vonum það besta,“ bætir hann við. Tengdar fréttir Minkar lausir í Mosfellsdal Þrjótarnir skildu ekki eftir bréf Aðgerðum í Mosfellsdal miðar vel áfram Börn verði ekki látin sofa úti í vögnum Segir málið óvenjulegt: Kæra á leiðinni „Alvarlegt brot gegn velferð þessara dýra“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » „Minkurinn tekur sér ekki frí yfir versló“ Myndskeið: Senda herlið til Ceuta vegna flóttafólks Þrjótarnir skildu ekki eftir bréf Forstjóri Gæslunnar mættur og brúin sígur Njarðvíkingar styrkja sig Umræðan Hindranir og hagvöxtur í litlu hagkerfi Fullveldi og fjárhagslegt sjálfstæði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fékk ný lungu eftir margra ára veikindi Forstjóri Gæslunnar mættur og brúin sígur Minnast Gunnars: „Maður hélt niðri í sér andanum“ „Verðum bara eitthvað peð þegar bjátar á“ Mest lesið Í gær Í vikunni Sérsveitin og Gæslan tóku yfir stjórn Bandero Inngrip auðveld innan landhelgi Var í afneitun vegna versnandi heilsu Myndir: Ísjakinn í Skagafirði bráðnar í kvöldsólinni Myndir: Bandero kominn til hafnar Birta myndir frá vettvangi: „Aðgerðin heppnaðist“ Bandero siglir utan í skip Hvals Vélinni hlekktist á í lendingu: Situr pikkföst Myndir: Megas lagður til hinstu hvílu Allt að 18 stiga hiti og bjartviðri Andlát: Skúli Steinar Pétursson Bandero siglir utan í skip Hvals Gunnar Þórðarson er látinn Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Fékk ný lungu eftir margra ára veikindi Mikið af mat fargað: „Ekki til fyrirmyndar“ Myndir: Megas lagður til hinstu hvílu Rændu heilum gámi af kampavíni Vélinni hlekktist á í lendingu: Situr pikkföst Birta myndir frá vettvangi: „Aðgerðin heppnaðist“ Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Íslendingum sendur tónninn Bandero siglir utan í skip Hvals Blöskrar ummæli um að allt sé í fína 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Gunnar Þórðarson er látinn Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Átti að mæta eftir hálftíma: „Ég er dottinn í það“ Nýjast á mbl.is » „Minkurinn tekur sér ekki frí yfir versló“ Myndskeið: Senda herlið til Ceuta vegna flóttafólks Þrjótarnir skildu ekki eftir bréf Forstjóri Gæslunnar mættur og brúin sígur Njarðvíkingar styrkja sig Umræðan Hindranir og hagvöxtur í litlu hagkerfi Fullveldi og fjárhagslegt sjálfstæði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fékk ný lungu eftir margra ára veikindi Gekkst undir lungnaígræðslu 27 ára Rændu heilum gámi af kampavíni Ríki ESB á móti varanlegum undanþágum Mest lesið Í gær Í vikunni Sérsveitin og Gæslan tóku yfir stjórn Bandero Inngrip auðveld innan landhelgi Var í afneitun vegna versnandi heilsu Myndir: Ísjakinn í Skagafirði bráðnar í kvöldsólinni Myndir: Bandero kominn til hafnar Birta myndir frá vettvangi: „Aðgerðin heppnaðist“ Bandero siglir utan í skip Hvals Vélinni hlekktist á í lendingu: Situr pikkföst Myndir: Megas lagður til hinstu hvílu Allt að 18 stiga hiti og bjartviðri Andlát: Skúli Steinar Pétursson Bandero siglir utan í skip Hvals Gunnar Þórðarson er látinn Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Fékk ný lungu eftir margra ára veikindi Mikið af mat fargað: „Ekki til fyrirmyndar“ Myndir: Megas lagður til hinstu hvílu Rændu heilum gámi af kampavíni Vélinni hlekktist á í lendingu: Situr pikkföst Birta myndir frá vettvangi: „Aðgerðin heppnaðist“ Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Íslendingum sendur tónninn Bandero siglir utan í skip Hvals Blöskrar ummæli um að allt sé í fína 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Gunnar Þórðarson er látinn Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Átti að mæta eftir hálftíma: „Ég er dottinn í það“

Share this article