Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Veiðimenn verða á vakt í Mosfellsbæ alla helgina

Read Full Article →

Aðgerðahópur er enn við störf í Mosfellsbæ og veiðimenn verða á vakt alla helgina. Hilmar Gunnarsson, bæjarstjóri, segir að brugðist sé við öllum ábendingum sem berast. Minka er enn leitað eftir að hundruð, jafnvel þúsundir, sluppu úr loðdýrabúi í Mosfellsdal í fyrradag. Engin staðfest tilfelli um minka í byggð Hilmar segir að nýliðin nótt hafi verið tíðindalítil og að ástandið sé að róast. „Og erum að fá fáar ábendingar inn á ábendingasíður hjá Mosfellsbæ. Sem betur fer eru engin staðfest tilfelli í byggð.“ Um tólf þúsund dýr voru í búinu. Ekki liggur fyrir hve mörg hafa verið drepin eða hvað mörg eru komin aftur í hús. Hilmar segir ástandið vera betra en hann óttaðist í fyrstu og áhyggjur af áhrifum á lífríkið hafi dvínað. „Já, ég myndi segja það. En maður skal aldrei segja aldrei. Við bara krossum fingur að þetta sé að hafast.“

Share this article