- What: Mink escape raises concern about fish farms
- Impact: Potential threat to salmon farms in Iceland
Stangaveiðifélag Reykjavíkur segir að minkarnir sem sluppu í Mosfellsdal í morgun geta valdið stórtjóni á laxastofnum í Elliðaánum, Korpu og Leirvogsá. Þetta kemur fram í færslu á Facebook-síðu Stangaveiðifélags Reykjavíkur undir yfirskriftinni: ÁRÍÐANDI TILKYNNING. Afar ágeng dýrategund Elliðaár. FF Mynd/Garðar „Mikið umhverfisslys varð í Mosfellsdal í morgun, þegar ótilgreindur fjöldi minka slapp út í náttúruna í kjölfar skemmdaverka á minkabúi í dalnum. Grunur leiki á að fleiri þúsundir dýra leiki lausum hala, en fjöldi þeirra hefur ekki verið staðfestur,“ segir Stangaveiðifélagið. Áfram segir að minkur sé afar ágeng dýrategund sem leggist meðal annars á ferskvatnsfiska. Tilkynni allar minkaferðir „Slysið gæti því valdið miklu tjóni á laxastofnum í Elliðaánum, Korpu og Leirvogsá. SVFR hvetur veiðimenn til að vera á varðbergi næstu daga og vikur og tilkynna allar minkaferðir tafarlaust til Meindýravarna Reykjavíkur ( https://reykjavik.is/meindyravarnir ),“ segir á Facebook-síðu Stangaveiðifélags Reykjavíkur.