Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Ýsan sækir í síldarhrognin

  • What: Sardines are migrating and being caught in large quantities
  • Impact: Fishing operations are adjusting to the movement of sardines
Read Full Article →

Töluvert hefur orðið vart við síld suður af landinu og er hún farin að hrygna. Bolfiskur sem þar veiðist sækir í hrognin. Ísfisktogarinn Bergey VE landaði 60 tonnum í Grindavík á mánudagsmorgun og aftur 60 tonnum í Eyjum í gær. „Það er í sjálfu sér ekki mikið að frétta," segir Ragnar Waage Pálmason skipstjóri í samtali við tíðindamann heimasíðu Síldarvinnslunnar. „Við lönduðum á mánudaginn vegna þess að það vantaði fisk í vinnsluna hjá Vísi. Aflinn þá var blandaður; þorskur, ýsa ufsi og fleira. Veitt var á Vík, Pétursey, Mýragrunni og á Höfðanum. Haldið var til veiða á ný strax að löndun lokinni og landað í Eyjum í gærmorgun. Þá var aflinn mest ýsa sem fékkst á Pétursey. Síðustu daga hefur orðið vart við töluvert af síld á þeim slóðum. Síldin er farin að hrygna og sækir ýsan í hrognin enda var mest af ýsu í aflanum en einnig þorskur og ufsi. Seinni túrinn hófst með sannkölluðu vetrarveðri, suðaustan brælu af verstu gerð. Þetta voru 25 metrar eða svo,” sagði Ragnar. Bergey heldur til veiða á ný í fyrramálið.

Share this article