- What: Large number of minks escaped from a farm
- Impact: Raised concerns about animal welfare and potential environmental impact
Innlent | mbl | 29.7.2026 | 22:15 Gríðarlegt tjón: „Þetta eru hryðjuverk“ Ásgeir Pétursson, eigandi Dalsbús í Mosfellsdal, ásamt mink sem var skotinn í dag. mbl.is/Árni Sæberg Kjartan Leifur Sigurðsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Minkar lausir í Mosfellsdal Gríðarlega skaðlegt málstað dýravelferðar Skyttur á vaktinni í nótt Veiðimenn beðnir um að mæta ekki á svæðið Ekki skemmtilegasta starfsemin Vilja láta leggja niður loðdýrahald » Fleiri tengdar fréttir Eigandi Dalsbús í Mosfellsdal segir bú sitt hafa orðið fyrir gríðarlegu tjóni vegna þeirra þúsunda minka sem sluppu úr búinu í nótt. Ásgeir Pétursson hefur rekið Dalsbú síðan árið 1986 en um er að ræða síðasta minkabú landsins. Brotist var inn í búið í nótt og þúsundum minka sleppt þaðan út. Alls var Ásgeir með 12.000 minka í búinu og telur hann að um 8.000 minkum hafi verið sleppt þaðan út. Frétt af mbl.is Skyttur á vaktinni í nótt Gangurinn teppalagður af minkum Er Ásgeir vaknaði í morgun varð hann var við mink í garðinum sínum, sem hann segir mjög óvanalegt. Hann hafi því vakið son sinn og sagt honum að koma að hjálpa sér að ná minknum. „Þegar ég opnaði hurðina þá var bara fullt af mink úti um allt. Þá sá ég náttúrulega um leið að eitthvað hefði skeð. Ég fer þá inn í bú og þá er gangurinn bara teppalagður af minkum,“ segir loðdýrabóndinn. Inn um þessar dyr Dalsbúsins var brotist í nótt. mbl.is/Árni Sæberg Erfitt er fyrir Ásgeir að meta umfang tjónsins sem hann hefur orðið fyrir vegna þessa en hann segir þó ljóst að það sé gríðarlegt. „Vandamálið okkar í haust er það að við erum búin að missa lífdýrin okkar. Við vitum ekki lengur hver eru góðu lífdýrin okkar og hver eru ekki góðu lífdýrin okkar. Tjónið er gríðarlegt, það er það eina sem ég get sagt.“ Frétt af mbl.is Lögreglan leitar að vitnum Dýraverndunarsamtök orðin hryðjuverkasamtök Dalsbúið er þriðja búið sem verður fyrir innbroti sem þessu síðan í maímánuði. Fyrst var brotist inn í svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi í maí og svo alífuglabúið Reykjabú í júní. Eru bændur orðnir áhyggjufullir yfir þessari þróun? „Ég held að bændur alls staðar ættu að vera áhyggjufullir um það að verða fyrir þessu. Þessir aðilar gera ekki greinarmun á því hvort þú sért með kindur, kýr, hesta eða eitthvað annað. Það er búið að breyta þessum dýraverndunarsamtökum í hryðjuverkasamtök,“ svarar Ásgeir. Frétt af mbl.is Veiðimenn beðnir um að mæta ekki á svæðið Tekið minna en tvo klukkutíma Ásgeir telur ljóst að fleiri en einn hafi staðið að innbrotinu. Hann er þó ekki með öryggismyndavélar í búinu og getur því ekki séð hve margir voru að verki. „Ef ég ætlaði að vera með öryggismyndavélar þá þyrftu þær að vera úti um allt. Þessir hryðjuverkahópar láta ekki þekkja sig. Þeir eru með lampa fyrir ofan höfuðið og lýsa niður á andlitið á sér. Þú sérð þess vegna ekki framan í þá þótt þú sért með myndavélar.“ Sumir minkanna drápust í hamagangnum í nótt. mbl.is/Árni Sæberg Ekki er ljóst klukkan hvað brotist var inn í búið. Miðað við ummerki og hversu mikið minkarnir náðu að éta frá því að þeim var sleppt út telur Ásgeir að það hafi gerst um klukkan tvö í nótt. Hann telur að verknaðurinn hafi tekið minna en tvo klukkutíma enda þurfi ekki mikið afl til að opna fyrir búrin, þó þau séu mjög mörg. Frétt af mbl.is Vaknaði við minka í garðinum „Þá verða bara slagsmál“ Á lóð Dalsbúsins er nú fiskikar með hundruðum minka sem hafa verið skotnir í dag. Ásgeir telur þó ljóst að enn fleiri minkar hafa náð að koma sér í burtu frá búinu. Flestir minkarnir eru þó enn á lóð Ásgeirs og hafa ekki komist langt. „Það er bara hægt að orða þetta með einu orði, þetta eru hryðjuverk. Þetta er sérstaklega hryðjuverk gagnvart dýrunum, þau líða fyrir þetta. Nú eru þau sett saman í búr án þess að þau þekki hvort annað og þá verða bara slagsmál,“ segir Ásgeir. Minkarnir eru nú á víð og dreif um lóð Dalsbúsins. mbl.is/Árni Sæberg Þessir minkar Dalsbúsins hafa allir verið skotnir í dag. mbl.is/Árni Sæberg Tengdar fréttir Minkar lausir í Mosfellsdal Gríðarlega skaðlegt málstað dýravelferðar Skyttur á vaktinni í nótt Veiðimenn beðnir um að mæta ekki á svæðið Ekki skemmtilegasta starfsemin Vilja láta leggja niður loðdýrahald » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Gríðarlegt tjón: „Þetta eru hryðjuverk“ Gríðarlega skaðlegt málstað dýravelferðar Stóð við loforðið og fékk sér húðflúr af þjálfaranum Sex hlutir sem fóru úrskeiðis í brúðkaupi Karls og Díönu Börn fyrrverandi hjónanna leiða saman hesta sína Umræðan Vaxandi vandi ríkisfjármála Evrópu Hvernig metum við það sem skiptir máli? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekki skemmtilegasta starfsemin „Lítið eftir“ af timburhúsinu í Stykkishólmi Nokkur hundruð minka sluppu frá minkabúi Allt bendir til innbrots: 10 til 12 þúsund minkar Mest lesið Í gær Í vikunni „Við erum alltaf að fá ný og ný vandamál í fangið“ Vaknaði við minka í garðinum Lætur af störfum sem forstjóri Hrafnistu Nokkur hundruð minka sluppu frá minkabúi Allt bendir til innbrots: 10 til 12 þúsund minkar „Þetta gæti farið verr en menn halda“ Nágranni: Mun hafa áhrif á öll dýr í mörg ár „Hrein og bein hryðjuverk á íslenskri náttúru“ „Þetta er ófremdarástand“ Minkar lausir í Mosfellsdal: Skothvellir heyrast 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Átti að mæta eftir hálftíma: „Ég er dottinn í það“ Kröftugur skjálfti í Bárðarbungu Hvað ef það verður skýjað 12. ágúst? Myndskeið: Refur át lömb skammt frá þjóðveginum Hnuplaði vörum að andvirði tæprar milljónar króna Hvítrússneskir menn stefna íslenska ríkinu Aðalsteinn gekk á hólm við easyJet Tóku eftir því við lendingu að maðurinn var horfinn Ming Ting dæmd í 12 ára fangelsi Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Ástandið aldrei verið eins slæmt Nýjast á mbl.is » Gríðarlegt tjón: „Þetta eru hryðjuverk“ Gríðarlega skaðlegt málstað dýravelferðar Stóð við loforðið og fékk sér húðflúr af þjálfaranum Sex hlutir sem fóru úrskeiðis í brúðkaupi Karls og Díönu Börn fyrrverandi hjónanna leiða saman hesta sína Umræðan Vaxandi vandi ríkisfjármála Evrópu Hvernig metum við það sem skiptir máli? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Þetta gæti farið verr en menn halda“ Ekki skemmtilegasta starfsemin „Gríðarlega alvarlegt“ Nágranni: Mun hafa áhrif á öll dýr í mörg ár Mest lesið Í gær Í vikunni „Við erum alltaf að fá ný og ný vandamál í fangið“ Vaknaði við minka í garðinum Lætur af störfum sem forstjóri Hrafnistu Nokkur hundruð minka sluppu frá minkabúi Allt bendir til innbrots: 10 til 12 þúsund minkar „Þetta gæti farið verr en menn halda“ Nágranni: Mun hafa áhrif á öll dýr í mörg ár „Hrein og bein hryðjuverk á íslenskri náttúru“ „Þetta er ófremdarástand“ Minkar lausir í Mosfellsdal: Skothvellir heyrast 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Átti að mæta eftir hálftíma: „Ég er dottinn í það“ Kröftugur skjálfti í Bárðarbungu Hvað ef það verður skýjað 12. ágúst? Myndskeið: Refur át lömb skammt frá þjóðveginum Hnuplaði vörum að andvirði tæprar milljónar króna Hvítrússneskir menn stefna íslenska ríkinu Aðalsteinn gekk á hólm við easyJet Tóku eftir því við lendingu að maðurinn var horfinn Ming Ting dæmd í 12 ára fangelsi Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Ástandið aldrei verið eins slæmt