Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Allt jafnt í Bestu deildinni

Read Full Article →

Tveir leikir voru í Bestu deild kvenna í fótbolta í dag. Liðin sem leika til úrslita í bikarkeppninni léku bæði, Þróttur og Grindavík/Njarðvík. Þróttur tók á móti Víkingi í Laugardal. Víkingur var á botni deildarinnar og gat spyrnt sér þaðan með sigri á Þrótti. Þróttur sat í sjötta sæti með 13 stig. Kayla Rollins kom heimakonum í þrótti yfir á 26. mínútu með skallamarki eftir stoðsendingu Jelenu Kujundzic. Þróttarar héldu forystunni allt þar til á 71. mínútu þegar Dagný Rún Pétursdóttir skoraði jöfnunarmark fyrir Víkinga. Liðin skildu jöfn og taka sitthvort stigið. Allt jafnt í Garðabæ Þá tók Stjarnan á móti nýliðum Grindavíkur/Njarðvíkur og þar var einnig allt jafnt. Liðin gerðu markalaust jafntefli. Liðin sitja áfram í sömu sætum, Stjarnan í því þriðja með 22 stig og Grindavík/Njarðvík í fimmta með 16 stig.

Share this article