Þrír leikri voru í Bestu deild karla í kvöld. Jón Þór Hauksson stýrði Stjörnunni í sínum fyrsta leik með Stjörnunni. Um hörkuleik var að ræða því liðið mætti Breiðabliki og þar stóð ekki á markaskorun. Viktor Karl Einarsson kom Blikum í 1-0 og Aron Bjarnason fylgdi því eftir með tveimur mörkum og Breiðablik leiddi 3-0 eftir um hálftíma leik. Emil Atlason minnkaði svo muninn í 3-2 áður en hálfleiksflautið gall. Kristófer Ingi Kristinsson jók forskot gestanna í Breiðabliki á 54. mínútu, 4-2. Emil Atlason og Birnir Snær Ingason bættu þá hvor við sínu markinu og tryggðu Stjörnumönnum stig úr leiknum. Víkingur enn á toppnum Víkingar tóku á móti KR en liðin sátu hlið við hlið í deildinni, Víkingar á toppnum með 28 stig og KR í öðru með 25. Helgi Guðjónsson kom heimamönnum yfir á 40. mínútu og Valdimar Þór Ingimundarson kom liðinu í 2-0 á 73. mínútu. Þar við sat og Víkingar auka forystu sína á toppi deildarinnar. Loks mættust ÍA og Valur þar sem Skagamenn unnu 1-0 sigur. Viktor Jónsson skoraði markið á 40. mínútu. Hér má sjá stöðuna í deildinni.