Þór/KA vann í kvöld sinn fyrsta leik í Bestu deild kvenna í ár þegar liðið sigraði Þrótt 2-0 á Akureyri í kvöld. María Dögg Jóhannesdóttir og Amalía Árnadóttir skoruðu mörk leiksins. Breiðablik endurheimti toppsætið um sinn með 3-0 útisigri á ÍBV. Líf Joostdóttir van Bemmel kom Blikum yfir og Ólöf Sigríður Kristinsdóttir skoraði svo tvö mörk. Breiðablik hefur nú 21 stig í toppsætinu, tveimur stigum meira en FH sem á þó leik til góða. Þrenna Birnu fyrir Stjörnuna Þá vann Stjarnan 3-0 sigur á Fram. Birna Jóhannsdóttir skoraði öll mörk Garðbæinga í leiknum. Stjarnan er nú í þriðja sæti með 17 stig en eftir sigur Þórs/KA á Þrótti er Fram komið niður í botnsæti deildarinnar.