Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Lífeyriskerfið nálgast vendipunkt

Read Full Article →

Deila Stórir árgangar hafa á undanförnum árum hafið töku lífeyris og fyrirséð er að hlutfall fólks á eftirlaunaaldri muni hækka áfram næstu árin. Á síðustu átta árum hefur svokölluð lífeyrisbyrði, þ.e. hversu háar lífeyrisgreiðslur eru sem hlutfall iðgjöldum, samtryggingarhluta lífeyriskerfisins aukist úr 66% í 85%. Hjá tveimur af fjórum stærstum lífeyrissjóðum landsins er hlutfallið komið yfir 100% sem gefur til kynna að innstreymi af iðgjöldum til sjóðanna er minna heldur en þeir greiða út í lífeyri. Árétta skal þó að umrætt hlutfall gefur ekki heildstæða mynd um fjárfestingarþörf og -getu lífeyrissjóða þar sem ekki er tekið með í reikninginn afborganir af skuldabréfum og arðgreiðslna af hlutabréfum eða söluverð seldra verðbréfa. Á meðfylgjandi mynd má sjá hvernig innstreymi vegna fjárfestingareigna annars vegar og inngreiðslna iðgjalda og útgreiðslna lífeyris hins vegar hefur þróast á undanförnum árum. Í þessu samhengi má nefna að afborganir skuldabréfa geta sveiflast talsvert milli ára, sem getur litað samanburðinn. Fjárfestingarþörf lífeyrissjóða nam ríflega 530 milljörðum króna í fyrra, eða sem samsvarar um 11% af vergri landsframleiðslu. Þar af var stærsti einstaki liðurinn afborganir höfuðstóls og vaxta skuldabréfa, eða um 70%. Í umræðuskjali sem Seðlabankinn gaf út árið 2024 er gert ráð fyrir að fjárfestingarþörf lífeyrissjóða muni aukast á næstu árum samhliða örum vexti kerfisins. Hækkandi lífeyrisbyrði hefur þó vakið spurningar um þróun lífeyriskerfisins og hvort mögulega komi að þeim tímapunkti í framtíðinni að þeir þurfi að byrja að losa um eignir til að standa straum af lífeyrisgreiðslum. Meðal þeirra sem hafa varað við áhrifum hækkandi lífeyrisbyrði á fjármálamarkaðinn eru Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra, Paul Horner, stjórnarformaður Arion banka, og Gunnar Jakobsson, fyrrverandi varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika. Í Viðskiptablaðinu sem kemur út í fyrramálið er rætt við Ólaf Sigurðsson, framkvæmdastjóra Birtu lífeyrissjóðs, um lífeyrisbyrðina. Hann segir það algengan misskling að hækkandi hlutfall sé merki um að kerfið sé á leið í útgreiðslufasa. Fréttin er hluti af lengri umfjöllun í Viðskiptablaðinu sem kemur út í fyrramálið. Áskrifendur geta nálgast greinina í heild sinni hér og annað efni úr blaðinu hér .

Share this article