Það var Akureyrarslagur í kvöld þegar KA tók á móti Þór á nýjum KA-velli. Hann var vígður í kvöld. Fyrri hálfleikur var fremur tíðindalítill og markalaust var í hálfleik. Sömu sögu var að segja með þann síðari og hvorugu liðinu tókst að skapa mark. Grannarnir skildu því jafnir með eitt stig hvor. KA er nú jafnt Stjörnunni í 10. og 11. sæti með 15 stig. Þórsarar, sem eru nýliðar í deildinni eru á botninum með 12 stig. Þá tók Breiðablik á móti ÍBV á Kópavogsvelli. Eitt mark var skorað í leiknum og það gerði Ágúst Þorsteinsson þegar hann tryggði Blikum þrjú stig í leiknum. Breiðablik er eftir sem áður í fjórða sæti en nú með 29 stig. Staðan í Bestu deildinni.