Einn lést í alvarlegu umferðarslysi á Þrengslavegi austan Litla-Sandfells í gærkvöldi. Lögreglu barst tilkynning um slys þar sem bifreið hafði hafnað utan vegar og oltið laust fyrir klukkan 23 í gærkvöld. Lögreglan á Suðurlandi greinir frá þessu á Facebook. Tveir voru í bílnum og annar var án lífsmarka þegar að var komið. Endurlífgunartilraunir reyndust árangurslausar. Hinn var fluttur á Landspítala háskólasjúkrahús til skoðunar og aðhlynningar. Rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins.