Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Banaslys í Þrengslum

Read Full Article →

Einn lést í umferðarslysi á Þrengslavegi austan Litla-Sandfells í gærkvöldi. Lögreglu barst tilkynning um slys þar sem bifreið hafði oltið og hafnað utan vegar laust fyrir klukkan 23 í gærkvöld. Lögreglan á Suðurlandi greinir frá þessu á Facebook. Tveir voru í bílnum. Ekki voru lífsmörk með öðrum þeirra þegar að var komið og endurlífgunartilraunir báru ekki árangur. Hinn var fluttur á Landspítala háskólasjúkrahús til skoðunar og aðhlynningar. Rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins.

Share this article