Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Lést á tjaldsvæði á Suðurlandi – Grunur um gaseitrun

Read Full Article →

Maður á áttræðisaldri var úrskurðaður látinn á tjaldsvæði í uppsveitum Árnessýslu í gær. Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglunnar á Suðurlandi. Tilkynning barst um hádegisbilið í gær um tvo meðvitundarlausa einstaklinga í tjaldi. Lögregla og sjúkralið voru send á vettvang. „Þrátt fyrir endurlífgunartilraunir var karlmaður á áttræðisaldri úrskurðaður látinn á vettvangi. Kona á sjötugsaldri var flutt á gjörgæsludeild þungt haldin,“ segir í tilkynningunni. Lögreglan á Suðurlandi fer með rannsókn málsins sem er rannsakað sem slys. Meðal þess sem er til skoðunar er hvort um gaseitrun hafi verið að ræða. Fréttin hefur verið uppfærð í samræmi við upplýsingar frá lögreglu sem sagði í upphaflegri tilkynningu að atvikið hefði verið í Biskupstungum.

Share this article