Lögreglu grunar að hitari sé orsök gaseitrunar á Suðurlandi í gær. Íslensk hjón fundust meðvitunarlaus í tjaldi í Biskupstungum um hádegisbilið í gær. Karlmaðurinn, sem var á áttræðisaldri, var úrskurðaður látinn á vettvangi en konan var flutt á gjörgæslu þungt haldin. Ekki liggur fyrir hver líðan hennar er. Magnús Ragnarsson, aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurlandi, segir að tilkynning hafi borist rétt fyrir hádegi í gær um tvo meðvitundarlausa einstaklinga í tjaldi. Hann tilgreinir ekki á hvaða tjaldsvæði í Biskupstungum fólkið var. Lögregla og sjúkraflutningamenn voru sendir á vettvang. „Þar er kunningjafólk byrjað að sinna fyrstu hjálp og sjúkraflutningar taka við og eru með endurlífgun í gangi. Endurlífgun ber ekki árangur,“ segir Magnús og vísar þá til karlmannsins. „Í framhaldi fer rannsókn af stað þarna. Það vaknar fljótlega upp grunur um að þetta geti tengst gasi. Það er tæki þarna, hitari einhvers konar, í tjaldinu og málið er rannsakað sem slys. Tæknideild kemur líka á staðinn. Hún er kölluð til í svona alvarlegum atvikum og aðstoðar við rannsókn.“ Fagaðili var fenginn til að veita kunningjum hjónanna áfallahjálp.