Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Lést á tjaldsvæði í Biskupstungum – Grunur um gaseitrun

Read Full Article →

Maður á áttræðisaldri var úrskurðaður látinn á tjaldsvæði í Biskupstungum í gær. Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglunnar á Suðurlandi. Tilkynning barst um hádegisbilið í gær um tvo meðvitundarlausa einstaklinga í tjaldi á tjaldsvæði í Biskupstungum. Lögregla og sjúkralið voru send á vettvang. „Þrátt fyrir endurlífgunartilraunir var karlmaður á áttræðisaldri úrskurðaður látinn á vettvangi. Kona á sjötugsaldri var flutt á gjörgæsludeild þungt haldin,“ segir í tilkynningunni. Lögreglan á Suðurlandi fer með rannsókn málsins sem er rannsakað sem slys. Meðal þess sem er til skoðunar hvort um gaseitrun hafi verið að ræða.

Share this article