Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Akureyrskt ofnæmisapp gerir garðinn frægan

Read Full Article →

Innlent | mbl | 25.7.2026 | 12:55 | Uppfært 21:50 Akureyrskt ofnæmisapp gerir garðinn frægan Bjarni Þór tekur við styrk frá Astma- og ofnæmisfélagi Íslands. AllergyID. Samsett mynd/Aðsend Setja bókamerki Akureyrska ofnæmissmáforritið AllergyID hefur hlotið styrk úr styrktarsjóði Astma- og ofnæmisfélags Íslands og jafnframt verið kynnt fyrir vinnuhópi EFA (Evrópusamtaka sjúklingafélaga á sviði astma og ofnæmis). Í tilkynningu Astma- og ofnæmisfélagsins segir að AllergyID sé séríslensk uppfinning og einstakt á heimsvísu. Appið sé fullþróað og þegar komið í notkun víðs vegar um heiminn. Félagið nefnir jafnframt að samskiptavandi sé ein algengasta ástæða alvarlegra ofnæmisviðbragða utan heimilis. 35 tungumál og 700 ofnæmisvaldar AllergyID er stafrænt ofnæmiskort þróað á Akureyri af Bjarna Þór Ævarssyni fyrrverandi matreiðslumanni. Samkvæmt tilkynningu frá AllergyID gerir forritið fólki kleift að búa til persónulegt ofnæmiskort „á 35 tungumálum, með yfir 700 ofnæmisvöldum, alvarleikastigum, krossmengunarviðvörunum og neyðarupplýsingum“. Kortið þarf einungis að fylla út einu sinni og þá er hægt að sýna það á veitingastöðum, hótelum, sjúkrahúsum, í skólum eða á ferðalögum, einnig án nettengingar. Í samtali við mbl.is segir Bjarni hugmyndina að appinu hafa kviknað síðasta sumar en hann hafi hafist handa við gerð þess í desember. „Ég er sem sagt fyrrverandi matreiðslumaður og í fyrra greindist ég með bráðaofnæmi fyrir skelfiski þannig að ég þurfti dálítið að stíga út úr því,“ segir Bjarni. Í kjölfar þess hafi hugmyndin vaknað en hann minnist þess að hafa verið á ferðalagi um Spán og upplifað erfiðleika með að tjá ofnæmi sitt á veitingastöðum þar. Hvernig virkar AllergyID? „Þú útbýrð ofnæmiskortið þitt í appinu, hjá mér væri það til dæmis bráðaofnæmi fyrir skelfiski ásamt vægu ofnæmi fyrir frjókornum,“ segir Bjarni. „Þá get ég deilt kortinu með QR-kóða eða sent með tölvupósti til gestgjafa eða veitingastaða.“ Bjarni vinnur nú að skanna sem hann ætlar að reyna að innleiða á veitingastaði, sjúkrahús og aðrar viðeigandi stofnanir sem myndi auðvelda ferlið enn frekar. Þá geti notendur skannað QR-kóðann sinn í skannanum og þá sé ofnæmiskort viðkomandi vistað hjá stofnuninni. Bjarni forritaði appið sjálfur með hjálp gervigreindarinnar og vinnur um þessar mundir að einhverju leyti með Astma- og ofnæmisfélagi Íslands við að fá tengingu inn í EFA. Ferlið segir hann hafa verið mjög lærdómsríkt. Bjarni vinnur nú að frekari útbreiðslu appsins. Grunnforritið er frítt inni á vefverslun App Store og Google Play en einnig er boðið upp á áskriftarmöguleika. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Einn látinn og fimmtán slasaðir í Berlín Meistarinn látinn aðeins 38 ára að aldri Nokkrir slasaðir á Pride-hátíð í Berlín Kína virðir dóminn að vettugi Bon Jovi lauk tónleikunum skyndilega Umræðan Hert á ETS Randafluga í sumarbústað Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Hormónameðferð ekki svarið við dalandi testósteróni „Það er bara algjört hrun“ Mikill styrkur í sjálfstæðinu fyrir Ísland Mest lesið Í gær Í vikunni Manni kastað fram af svölum Þjóðarrétturinn kostar nú 1.370 krónur „Það er bara algjört hrun“ Lögregla og björgunarsveit í viðbragðsstöðu Hormónameðferð ekki svarið við dalandi testósteróni Feðgar greindust báðir með hvítblæði Gular viðvaranir vegna hvassviðris Góða veðrið seinna á ferðinni en áætlað var Þyrlan kölluð út vegna bráðaveikinda Landskjörstjórn hafnaði Heimssýn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Verktakasamningi var rift um leið og málið kom upp Rafbílar hækka um allt að 45% við inngöngu í ESB Dularfullt hljóð hélt vöku fyrir bæjarbúum Átti bágt með að trúa eigin augum Flugmannahópur Icelandair stækkar um 31 Afskrifuðu sektir fyrir 670 milljónir Góða veðrið seinna á ferðinni en áætlað var Fimm flutt á sjúkrahús eftir bílslys Mistök Vísis og þrettán daga þögn Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Þungbært mál Íslendings í Noregi Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Nýjast á mbl.is » Einn látinn og fimmtán slasaðir í Berlín Meistarinn látinn aðeins 38 ára að aldri Nokkrir slasaðir á Pride-hátíð í Berlín Kína virðir dóminn að vettugi Bon Jovi lauk tónleikunum skyndilega Umræðan Hert á ETS Randafluga í sumarbústað Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hormónameðferð ekki svarið við dalandi testósteróni Gefa lítið fyrir endurkomu Baldurs Mikill styrkur í sjálfstæðinu fyrir Ísland Þegar Ísland sótti ekki um Mest lesið Í gær Í vikunni Manni kastað fram af svölum Þjóðarrétturinn kostar nú 1.370 krónur „Það er bara algjört hrun“ Lögregla og björgunarsveit í viðbragðsstöðu Hormónameðferð ekki svarið við dalandi testósteróni Feðgar greindust báðir með hvítblæði Gular viðvaranir vegna hvassviðris Góða veðrið seinna á ferðinni en áætlað var Þyrlan kölluð út vegna bráðaveikinda Landskjörstjórn hafnaði Heimssýn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Verktakasamningi var rift um leið og málið kom upp Rafbílar hækka um allt að 45% við inngöngu í ESB Dularfullt hljóð hélt vöku fyrir bæjarbúum Átti bágt með að trúa eigin augum Flugmannahópur Icelandair stækkar um 31 Afskrifuðu sektir fyrir 670 milljónir Góða veðrið seinna á ferðinni en áætlað var Fimm flutt á sjúkrahús eftir bílslys Mistök Vísis og þrettán daga þögn Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Þungbært mál Íslendings í Noregi Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Manneskjunni bjargað úr Ölfusá

Share this article