Security News

Cybersecurity news aggregator

🔄
LOW Updates Viðskiptablaðið

50% færeyskra smábátasjómanna með íslenskt öryggisapp

  • What: Agga, a free security app for small boat sailors, launched in the Faroe Islands
  • Impact: 50% of Faroese small boat sailors have downloaded the app
Read Full Article →

Agga, ókeypis öryggisapp fyrir smábátasjómenn sem þróað var árið 2024 af íslenska nýsköpunarfyrirtækinu Alda Öryggi, er nú komið til Færeyja. Frá 3. júlí hafa allir færeyskir smábátasjómenn getað sótt appið sér að kostnaðarlausu. Gísli Níls Einarsson, framkvæmdastjóri Alda Öryggi, segir viðtökurnar hafa verið frábærar. Aðeins tæpum tveimur vikum eftir að Agga var kynnt í færeyskum fjölmiðlum hafa hátt í 50% færeyskra smábátasjómanna þegar sótt appið, að sögn formanns stærsta smábátafélags Færeyja. Það sýnir skýrt að þörfin fyrir einfalt og aðgengilegt öryggistæki fyrir sjómenn er mikil. Útrás Öggu til Færeyja er afrakstur samstarfs sem hefur staðið yfir frá því í maí milli íslenskra og færeyskra aðila sem vinna að öryggismálum sjómanna. Verkefnið hefur verið unnið í samvinnu við Sjónám (slysavarnaskóla sjómanna í Færeyjum), Sjóvinnustýrið (Siglingamálastofnun Færeyja), Meginfelag Útróðrarmanna (stærsta félag smábátasjómanna í Færeyjum) og Sprotin , færeyskt mál- og orðabókaforlag. Agga á rætur að rekja til þeirrar öryggismenningar sem byggst hefur upp á Íslandi á undanförnum áratugum. Þar hefur náið samstarf lykilaðila skipt miklu máli, meðal annars Slysavarnaskóla sjómanna, útgerða, Samgöngustofu og Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Skjámynd af viðmóti appsins eins og það birtist í farsíma. „Þetta samstarf hefur átt stóran þátt í þeim árangri sem náðst hefur í öryggismálum sjómanna á Íslandi. Á árunum 2014–2025 urðu sjö banaslys á sjó við Ísland og sjö af þessum tólf árum liðu án nokkurs banaslyss. Þessi árangur hefur vakið athygli og er oft nefndur sem dæmi um fyrirmyndar öryggismenningu til sjós,“ segir Gísli Níls. Agga er nýleg stafræn lausn sem styður við áframhaldandi þróun öryggismenningar til sjós. Nú er íslensk þekking og nýsköpun í öryggismálum sjómanna farin að nýtast færeysku sjómannasamfélagi. Í appinu geta smábátasjómenn meðal annars framkvæmt eigin skoðun og hættumat á bátnum, haldið utan um öryggisupplýsingar á einum stað og nálgast einfalda öryggisfræðslu. Markmiðið er að auðvelda undirbúning fyrir sjóferð, efla öryggisvitund og styðja sjómenn í daglegu öryggisstarfi um borð. Aðlagað að færeyskum aðstæðum Vinnan við að aðlaga Öggu að Færeyjum hófst í maí á þessu ári á sjávarútvegssýningunni Atlantic Fair í Klaksvík. Þar boðaði Sjónám til fundar með Sjóvinnustýrinu og formanni smábátasjómannafélagsins í Klaksvík. Í framhaldinu var appið aðlagað að færeyskum aðstæðum í samstarfi við þessa aðila. Færeyska þýðingin var unnin með Sjónám og aðstoð Sprotans, sem kom að yfirferð á færeysku orðalagi. Samstarfið hefur einnig skilað því að þegar sjómaður lýkur árlegri sjálfsskoðun á búnaði, samskiptum og öryggi bátsins í gegnum Öggu, uppfyllir hann um leið kröfur Sjóvinnustýrisins um árlega sjálfsskoðun fyrir för undir 15 metrum að lengd. Ferlið verður þannig einfaldara, stafrænt og aðgengilegt í símanum. Frábærar viðtökur í Færeyjum Agga var kynnt í fréttum KVF föstudagskvöldið 3. júlí (04:50). Fyrstu dagana sóttu tæplega hundrað færeyskir smábátasjómenn appið. Síðan hefur notkunin aukist hratt og nú hafa hátt í 50% færeyskra smábátasjómanna sótt Öggu. Að mati Alda Öryggi sýna viðtökurnar að færeyskir sjómenn eru tilbúnir að nýta stafrænar lausnir ef þær eru einfaldar, gagnlegar og byggðar á raunverulegum þörfum þeirra sem starfa á sjó. Finnbjørn Vang, formaður smábátasjómannafélagsins Meginfelag Útróðrarmanna í Klaksvík, hefur lýst Öggu sem einföldu og mikilvægu öryggistæki fyrir smábátasjómenn, yfirvöld og fjölskyldur áður en haldið er úr höfn. Debes Sivertsen, skólameistari Sjónáms, hefur einnig bent á að Agga öryggis-appið sé einfalt í notkun, með allar helstu öryggisupplýsingar beint í símanum hjá sjómönnum og að það geti nýst bæði minni atvinnubátum og frístundabátum. „Við erum afar þakklát fyrir þær góðu viðtökur sem Agga hefur fengið í Færeyjum. Það skiptir okkur miklu máli að þetta sé ekki bara íslensk lausn sem er flutt út, heldur lausn sem er aðlöguð með færeyskum aðilum og færeyskum sjómönnum í huga,“ segir Gísli Níls Einarsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Alda Öryggi. „Markmiðið er skýrt: að styðja færeyska smábátasjómenn með einföldu öryggistæki sem hjálpar þeim að undirbúa sig vel, halda utan um öryggismál og komast heilir heim til fjölskyldu sinnar.“ Íslensk nýsköpun með alþjóðlegt notagildi Aðstæður íslenskra og færeyskra smábátasjómanna eiga margt sameiginlegt. Veður getur breyst hratt, sjólag getur verið krefjandi og oft er unnið við aðstæður þar sem góður undirbúningur og einföld öryggisvitund skiptir miklu máli. Agga byggir á þeirri hugsun að öryggisþekking eigi alltaf að vera nálægt sjómanninum. Hún á að vera í símanum, einföld í notkun og nýtast bæði fyrir brottför og á sjónum. „Það er mjög ánægjulegt að sjá íslenska öryggislausn nýtast færeyskum sjómönnum með þessum hætti. Ísland og Færeyjar eiga langa og sterka sjómannahefð. Ef íslensk reynsla og færeyskt samstarf getur hjálpað til við að efla öryggi sjómanna, þá er það verkefni sem skiptir máli,“ segir Gísli.

Share this article