Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Kanna áhrifin af lagasetningunni

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 16.4.2026 | 12:20 Kanna áhrifin af lagasetningunni „Hvað gerði ég nú af mér?“ gæti þessi kisa verið að velta fyrir sér. Hún þarf ekki að hafa áhyggjur af því að félaginu sé illa við dýr. mbl.is/Eggert Jóhannesson Kristján Jónsson [email protected] Setja bókamerki Astma- og ofnæmisfélag Íslands vinnur að því að safna ábendingum frá félagsmönnum og öðrum um hvernig lög um gæludýr í fjölbýlishúsum komi niður á þeirra fólki. Félagsmenn eru hvattir til að senda félaginu erindi til að félagið geti betur áttað sig á skaðanum sem lögin valda, eins og það er orðað í pistli formannsins Fríðu Rúnar Þórðardóttur í tímaritinu Astma og ofnæmi sem félagið gefur út. Morgunblaðið spurði Fríðu Rún út í þessa vinnu og hún segir of snemmt að segja til um hvað kemur út úr henni. Geta notið nafnleyndar „Við erum að fara í gang með þetta verkefni í ljósi þess að þessari lagasetningu var þröngvað í gegn þar sem ekki var hlustað á lækna með sérmenntun á sviði ofnæmislækninga eða greinargerðir frá okkur. Við reynum að varpa ljósi á hvaða afleiðingar þetta geti haft, að sjálfsögðu ekki á alla, en einhverja, og getur haft áhrif á lífsgæði barna með ofnæmi. Við viljum því reyna að setja fingurinn á hvaða áhrif þetta hefur á líf og lífsgæði og safna gögnum frá fólki,“ segir Fríða Rún en hún og aðrir hjá Astma- og ofnæmisfélaginu hafa átt mörg samtöl við fólk í fjölbýlishúsum sem hefur áhyggjur af gæludýrahaldi af heilsufarsástæðum. „Síðar kemur í ljós hvort við gerum eitthvað varðandi þessi gögn og þessar upplýsingar. Þegar fólk hefur samband þá eru þetta trúnaðarupplýsingar. Við vinnum úr þessum upplýsingum ef fólk kýs það. Stundum vill fólk ekki koma fram undir nafni með því að veita viðtöl eða slíkt og við virðum það auðvitað.“ Til eru dæmi um að fólk með astma eða ofnæmi hafi lent í slæmum aðstæðum út af návígi við dýr og má til dæmis lesa um það í tímariti félagsins. Áður hefur einnig komið fram í umræðunni að fólk hafi farið út af heimili sínu vegna gæludýrahalds í fjölbýlishúsum. „Við viljum auðvitað eiga gott samtal og við erum til staðar fyrir okkar fólk,“ segir Fríða Rún. Víðtæk starfsemi Í starfi félagsins geta málin sem upp koma verið mjög fjölbreytt. „Tilfellin eru mismunandi. Ef við tökum sem dæmi börn sem eru með ofnæmi fyrir köttum þá þurfa þau mögulega að taka ofnæmistöflur áður en þau fara í leikskólann vegna þess að starfsmaður, eða börn á leikskólanum, eru með dýr á sínu heimili. Það eru alls konar hlutir sem við getum ekki tekið á enda getum við ekki bannað fólki að eiga dýr. En margir sem eru með ofnæmi geta lent í óheppilegum aðstæðum af og til eða eiga börn sem geta lent í óheppilegum aðstæðum út af ofnæmi,“ segir Fríða Rún og útskýrir að stigsmunur geti verið á hversu alvarlegt ofnæmi sé. „Ofnæmi er missvæsið og þetta getur verið flókið viðfangsefni. Barn með ofnæmi getur upplifað vanlíðan innan um dýr jafnvel þótt viðkomandi sé með vægt ofnæmi.“ Fríða Rún tekur skýrt fram að innan Astma- og ofnæmisfélagsins sé ekki fólk sem hafi óbeit á dýrum. „Við erum ekki einstaklingar sem hata dýr eða eitthvað í þá veruna. Okkur þykir vænt um þau og eigum sum hver gæludýr ef við erum svo lánsöm að vera ekki með ofnæmi og búum við þær aðstæður að geta haldið dýr. En þeir sem eru ekki með ofnæmi fyrir dýrum geta aftur á móti verið með ofnæmi fyrir hnetum eða einhverri fæðu. Félagið spannar ansi breitt svið og mál eins og loftgæðin eða umferðarmenningin tengjast astmanum. Varðandi ofnæmið skiptist það í fæðu-, dýra- og frjókornaofnæmi og allt þetta getur komið inn á borð til okkar.“ Fríða Rún Þórðardóttir Fáðu aðgang að þessari grein Til þess að lesa þessa frétt í fullri lengd þarftu að skrá þig inn. Nýskráning er ókeypis og án skuldbindingar. – það er ókeypis og án skuldbindingar. Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Kanna áhrifin af lagasetningunni Nær 100 milljarða aukning hjá LSR Þjálfari Keflavíkur þarf að borga tugi þúsunda Ísafjarðarflug tryggt til næstu fjögurra ára Kann ekki að meta að vera sökuð um blekkingar Umræðan Það er svo margt hægt að gera strax Allir og óháðir að misskilja? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Mesta atvinnuleysi í mars síðan 2022 Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Óhjákvæmilegir vaxtarverkir Vinsælum veitingastöðum lokað Mest lesið Í gær Í vikunni Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Hækkar byggingarkostnað „Ég mun ekki reka þannig pólitík“ Bandaríkjaher skoðar aðstæður í Narsarsuaq Óábyrgt að fara að lofa einhverju Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Loftbrú breytt peninganna vegna Hitinn allt að 10 stigum Sækir um eigið embætti eftir „leikritið“ í haust Óboðlegt að framkvæmdastjóri fari svona fram Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Nýjast á mbl.is » Kanna áhrifin af lagasetningunni Nær 100 milljarða aukning hjá LSR Þjálfari Keflavíkur þarf að borga tugi þúsunda Ísafjarðarflug tryggt til næstu fjögurra ára Kann ekki að meta að vera sökuð um blekkingar Umræðan Það er svo margt hægt að gera strax Allir og óháðir að misskilja? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Andstaða við inngöngu snareykst milli ára Engin stemning fyrir flokkshroka Tekjurnar drógust saman um milljarð á einu ári Lágar álögur og vaxandi samfélag Mest lesið Í gær Í vikunni Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Hækkar byggingarkostnað „Ég mun ekki reka þannig pólitík“ Bandaríkjaher skoðar aðstæður í Narsarsuaq Óábyrgt að fara að lofa einhverju Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Loftbrú breytt peninganna vegna Hitinn allt að 10 stigum Sækir um eigið embætti eftir „leikritið“ í haust Óboðlegt að framkvæmdastjóri fari svona fram Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn

Share this article