Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Tilraunaflug SpaceX heppnaðist vel

Read Full Article →

Tilraunaflug Starship-risaeldflaugar geimferðafyrirtækisins Space X í gærkvöld heppnaðist vel. Flaugin tók á loft frá Texas skömmu fyrir klukkan 23 að íslenskum tíma. Hún lenti í Indlandshafi rúmlega klukkustund síðar. „Starship er ósködduð, hún flýtur á hafinu og sendir mæligögn,“ sagði Elon Musk, stofnandi og forstjóri SpaceX, skömmu eftir að flaugin lenti. „Þetta er í fyrsta sinn sem Starship-eldflaug lendir á hafinu heil á húfi,“ sagði Dan Huot, talsmaður fyrirtækisins. Þetta er þriðja gerð eldflaugarinnar og aðalmarkmið eldflaugaskotsins var að kanna hvernig breyting á hönnun flaugarinnar myndi reynast.

Share this article