Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Óbreyttir vextir hjá evrópska seðlabankanum

Read Full Article →

Seðlabanki Evrópu tilkynnti í hádeginu um að hann hefði ákveðið að halda stýrivöxtum sínum óbreyttum í 2,25%. Í yfirlýsingu bankans segir að óvissa sé enn mikil í ljósi krefjandi aðstæðna á orkumörkuðum vegna stríðsátaka í Miðausturlöndum. Verðbólguáhrif vegna þeirra eigi enn eftir að koma í ljós. Stjórn seðlabankans segist fylgjast grannt með umfangi framboðsskellsins af völdum stríðsátakanna, sem og óbeinum áhrifum og annarrar umferðar áhrifum. Verðlagning á afleiðumörkuðum gefa til kynna að markaðsaðilar eigi von á tveimur stýrivaxtahækkunum hjá evrópska seðlabankanum á seinni árshelmingi, samkvæmt frétt Reuters . Næsti vaxtaákvörðunarfundur bankans fer fram dagana 9.-10. september. Seðlabankinn hækkaði vexti í fyrsta sinn í nærri þrjú ár í júní síðastliðnum. Verðbólga á evrusvæðinu jókst talsvert eftir að stríðið í Íran hófst og fór úr 1,9% í febrúar í 3,2% í maí. Verðbólgan hjaðnaði í júní og mældist 2,8%.

Share this article