Seðlabanki Evrópu hefur ákveðið að hækka stýrivexti sína um 0,25 prósentustig, úr 2,0% í 2,25%. Þetta er fyrsta vaxtahækkun seðlabankans í nærri þrjú ár. Verðbólga á evrusvæðinu hefur hækkað undanfarna mánuði, að stórum hluta vegna hækkunar eldsneytisverðs vegna stríðsins í Íran, og mældist 3,2% í maí. Verðbólgan hefur ekki verið meiri síðan í september 2023. Verðbólgumarkmið evrópska seðlabankans nemur 2,0%. Samhliða vaxtaákvörðuninni á hádeginu birti seðlabankinn uppfærða verðbólguspá sem gerir ráð fyrir að verðbólga verði að meðaltali 3,0% í ár, 2,3% á næsta ári og 2,0% árið 2028. Spá bankans fyrir árin 2026 og 2027 var færð upp frá fyrri spá bankans sem gefin var út í mars. Eiga von á annarri vaxtahækkun Greinandi hjá franska bankanum Societe Generale segir í samtali við Reuters útlit fyrir að seðlabankinn muni hækka vexti a.m.k. tvisvar í ár. Hann segir verðlagningu á mörkuðum gefa til kynna að markaðsaðilar telji líkur á annarri vaxtahækkun í júlí en segist sjálfur telja líklegt að seðlabankinn muni bíða eftir frekari gögnum og nýjum spám í september. Í yfirlýsingu Seðlabanka Evrópu segist bankinn ekki vera búinn að ákveða um næstu skref.