Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hundraðasta Meistaramót Íslands: Brot úr sögunni

Read Full Article →

Fyrsta Meistaramót Íslands í frjálsíþróttum var haldið árið 1927 og því er mótið í ár það eitthundraðasta í röðinni. Í safni RÚV má finna ýmsar svipmyndir af mótunum í gegnum tíðina, en einnig eru til lifandi myndir frá sögulegu Meistaramóti Íslands sem haldið var á Laugardalsvelli árið 1960, þó svo að Sjónvarpið hefði ekki hafið göngu sína fyrr en sex árum síðar. Gunnar Páll Jóakimsson fyrrverandi hlaupari skoðar glefsur úr sögu meistaramótanna í innslaginu sem sjá má í spilaranum hér fyrir ofan. MÍ í frjálsíþróttum hefst svo á morgun og stendur yfir fram á sunnudag. RÚV mun sýna beint frá keppni mótsins á laugardag frá klukkan 14:00.

Share this article