Hundraðasta Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum fór fram á ÍR-vellinum um helgina og þá gerðist nokkuð sjaldgæft. Fremstu sleggjukastarar landsins í kvennaflokki mættust loks á sama mótinu. Elísabet Rut Rúnarsdóttir og Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir stunda báðar nám við háskóla í Bandaríkjunum, Guðrún Karítast í Virginíu og Elísabet Rut í Texas. Þær ná því sjaldan að mætast og hvað þá hér á Íslandi. „Ég var mjög spennt. Það er alltaf gaman að keppa saman,“ segir Guðrún og Elísabet tekur undir það. „Það er alltaf ótrúlega gaman að vera með góða samkeppni. Það er sjaldan sem við náum að keppa saman.“ Sleggjukastararnir Elísabet Rut Rúnarsdóttir og Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir mættust loks í keppni hérlendis á Meistaramótinu um helgina. Þær hafa skipst á að bæta Íslandsmetið og segja það klárlega hafa ýtt þeim áfram að hafa svona samkeppni. Samkeppnin bætir þær báðar Íslandsmetið í sleggjukasti kvenna hefur verið slegið fimm sinnum á síðustu 12 mánuðum og hafa þær skipst á að bæta metið. Nú á Guðrún Karítas metið sem er 73,88 metrar, sett 24. apríl síðastliðinn, aðeins 8 dögum eftir að Elísabet Rut bætti metið með kasti upp á 72,89 metra. Svona einvígi í íslenskum frjálsíþróttum hafa ekki sést áratugum saman. „Það er einstakt að vera með góða samkeppni í sinni grein á Íslandi. Þetta er búið að ýta okkur báðum miklu lengra en við héldum að við myndum fara. Þetta hefur gefið okkur báðum tækifæri á að vaxa og dafna í þessari íþrótt. Það er alltaf einhver til að ýta manni áfram,“ segir Elísabet. „Auðvitað veit ég ekki hvar ég væri ef ég hefði ekki samkeppnina," segir Guðrún Karítas. „En bara fyrir mig, síðan ég byrjaði, þá hefur það verið markmið mitt að ná Betu. Það er mjög gaman að hafa einhvern til að ýta sér áfram. Við erum einmitt sami árgangur þannig að við erum búnar að vera samferða í þessu,“ segir Guðrún en þær eru báðar fæddar árið 2002. Fylgjast spenntar með hvorri annarri Guðrún Karítas og Elísabet viðurkenna að þær bölvi hvorri annarri þegar þær eru að taka Íslandsmetið frá hinni. „Já, auðvitað langar mann alltaf að eiga það sjálf sko en á sama tíma en á sama tíma er það bara ennþá meiri hvatning til að kasta lengra,“ segir Elísabet og það sama á við um Guðrúnu Karítas. „Já ég var alveg að fylgjast með öllum mótunum hennar í Bandaríkjunum. Sérstaklega þegar ég vaknaði og hún var búin að bæta það þarna fyrst. Ég var bara alveg... Svo tekur hún það nokkrum dögum áður en ég fór til Kenía og þá var ég komin með hvatninguna til að ná því aftur,“ segir Guðrún. Mikill undirbúningur að baki fyrir Evrópumótið Framundan er Evrópumótið í frjálsíþróttum í Birmingham á Englandi. Það hefst 10. ágúst næstkomandi og verða Elísabet Rut og Guðrún Karítas báðar meðal keppenda. Þær eru afar framarlega meðal evrópskra sleggjukastara; Guðrún er sjöunda á Evrópulistanum og Elísabet fjórtánda en þær ætla að fara afslappaðar til keppni, eins langt og það nær. „Bara að kasta langt og hafa gaman. Við erum búnar að undirbúa okkur allt árið fyrir EM. Maður á bara að njóta þegar maður kemur á stóra sviðið. Við erum búnar að leggja inn alveg ótrúlega mikla orku til að geta staðið okkur vel og það verður bara gaman að sjá hvað það gefur,“ segir Elístabet.