Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Í dag: 100. Meistaramót Íslands og undanúrslit bikarkeppninnar

  • What: Announcement of the 100th Icelandic Championships in freestyle wrestling
  • Impact: Sports event coverage and participants
Read Full Article →

100. Meistaramót Íslands í frjálsíþróttum fer fram um helgina en keppni hófst í gær. RÚV sýnir beint frá keppnisdeginum í dag þar sem margt af fremsta frjálsíþróttafólki landsins verður meðal keppenda. Bein útsending frá mótinu hefst klukkan 14:00 á RÚV en meðal keppnisgreina á morgun er sleggjukast kvenna þar sem Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir og Elísabet Rut Rúnarsdóttir munu án efa berjast hart um Íslandsmeistaratitilinn. Erna Sóley Gunnarsdóttir er meðal keppenda í kúluvarpi og í sleggjukasti karla mun Hilmar Örn Jónsson stíga á stokk en þau hafa bæði verið keppendur á stórmótum undanfarin ár. Úrslitin í 100 metra hlaupi og ýmislegt fleira verður svo á boðstólum en það er Sigurbjörn Árni Arngrímsson sem mun sjá um að lýsa mótinu af sinni alkunnu snilld. Hverjir mæta Þrótti í bikarúrslitum? Klukkan 17:00 hefst svo leikur Fram og Grindavíkur/Njarðvíkur í undanúrslitum Mjólkurbikars kvenna í fótbolta. Þróttur tryggði sér sæti í úrslitum í gærkvöld með sigri á ÍBV og bíður sigurvegarans í kvöld. Úrslitaleikurinn fer fram 12. september. Leikur kvöldsins verður í beinni á RÚV 2 og upphitun hefst í Stofunni 16:40.

Share this article