Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Fatakaup Íslendinga færast úr landi

Read Full Article →

Velta í fata- og byggingavöruverslunum dróst saman um rúm 3% í fyrra samanborið við 2024. Á sama tíma hefur netverslun erlendis frá aukist verulega í þessum vöruflokkum sem bendir til áframhaldandi tilfærslu neyslu úr innlendri verslun yfir í erlendar netverslanir. Þetta kemur fram í greiningu frá Rannsóknarsetri verslunarinnar. Á móti þessari þróun jókst þó velta í matvöruverslunum um tæp 8% milli ára og í bókaútgáfu um 4,4%. Talsverð aukning var einnig í bílatengdum greinum en velta í bílaleigu jókst um 7,7% og velta í bílasölu um 28,3%. Aukning í bílasölu skýrist annars vegar af lágri veltu árið 2024 og hins vegar af mjög aukinni sölu undir lok árs 2025. Velta í olíuverslun dróst hins vegar saman um 13,3% milli ára. Mesta aukningin samkvæmt Rannsóknarsetri verslunarinnar mældist hins vegar í lyfjaverslunum en þar jókst veltan um yfir 30% milli ára.

Share this article