Íslendingar versluðu í erlendum netverslunum fyrir 4,2 milljarða í desember. Veltan jókst um rúm 20% frá sama mánuði í fyrra og hefur aldrei verið meiri í einum og sama mánuði. Þetta kemur fram í gögnum Rannsóknaseturs verslunarinnar, RSV. Á síðasta ári vörðu Íslendingar alls 34,5 milljörðum í erlendum netverslunum. Það er aukning um 15% frá fyrra ári. „Enn eru engin merki á lofti um að erlend netverslun Íslendinga hafi náð hámarki sínu,“ segir í tilkynningu RSV. Hér má sjá hvernig umfang erlendrar netverslunar hefur þróast á síðustu misserum.Rannsóknasetur verslunarinnar