Viðskipti | mbl | 21.4.2026 | 10:58 Velta eykst mikið í bílasölu, sjávarútvegi og tæknigreinum Samsett mynd/mbl.is/Eggert/Anton Brink Setja bókamerki Velta jókst í flestum af helstu atvinnugreinum landsins í janúar og febrúar 2026 samanborið við sömu mánuði árið 2025. Mest jókst velta í bílasölu, tækni- og hugverkaiðnaði (einkum í starfsemi tengdri gagnaverum) og sjávarútvegi og fiskeldi. Aftur á móti var töluverður samdráttur í framleiðslu málma auk þess sem nær óbreytt þróun var í ferðaþjónustu. Velta jókst umfram verðbólgu í um helmingi atvinnugreina en vísitala neysluverðs hækkaði um 5,2% á tímabilinu. Þetta kemur fram í samantekt Hagstofu Íslands . Þar segir að velta í tækni- og hugverkaiðnaði (án lyfjaframleiðslu) hafi verið rúmlega 114 milljarðar króna í janúar og febrúar sem hafi verið um 20% meira en á sama tíma árið 2025. Grafík/Hagstofa Íslands Verulegur vöxtur í upplýsingatæknigreinum Tekið er fram að verulegur vöxtur hafi verið í upplýsingatæknigreinum og að velta hafi aukist hlutfallslega mest í starfsemi á sviði upplýsingaþjónustu (gagnavinnslu, hýsingu, o.fl.) eða um 111%. Þá var einnig tæplega 38% vöxtur í meðal- og hátækniframleiðslu. Í hugbúnaðargerð jókst velta um 12% auk þess sem tæplega 9% vöxtur var í þjónustustarfsemi á sviði upplýsingaþjónustu. Í framleiðslu á tölvu-, rafeinda- og optískum vörum dróst velta hins vegar saman um 2%. Enn fremur kemur fram að í einkennandi greinum ferðaþjónustu hafi veltan staðið í stað miðað við fyrra ár og var rúmlega 120 milljarðar króna. Samdráttur var í meirihluta ferðaþjónustugreina en um 55% vöxtur í bílaleigu hafði jákvæð áhrif á heildarniðurstöðuna ásamt tæplega 7% vexti hjá heilsulindum. Í veitingasölu og -þjónustu jókst velta um tæp 4% og 2% í farþegaflutningum á sjó, vötnum og ám. Rúmlega 22% samdráttur var í farþegaflutningum á landi og 9% í flugi. Þá var einnig um 10% samdráttur hjá ferðaskrifstofum og lítilsháttar minnkun á veltu gististaða um rúmlega 1%. Nánar á vef Hagstofu Íslands . Blogga um frétt Pistlar » Sigurður Már Jónsson Hvenær varð Ríkisútvarpið miðja íslenskrar fjölmiðlunar? Sigurður Már Jónsson Af hverju ekki frjálsar kosningar á Kúbu? Fleira áhugavert Fluttur á sjúkrahús eftir líkamsárás á Akureyri Árni tekur sæti Þórdísar: „Þetta verður gaman“ Fjárveitingavaldið þarf að hlusta Tókust á um ESB: „Ég kalla þetta þvælu“ Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Forstjóraskipti hjá Apple Lyfja vill kaupa apótekið af Einari Norðurorka hagnaðist um 900 milljónir „Innflutt verðbólga er í raun mjög lítil“ Metaukning heimsókna í Smáralind Advise lýkur 166 milljóna fjármögnun Áhugaverðustu úrin í Genf þetta árið María nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Miðgildi launa viðskipta- og hagfræðinga 1,3 milljónir Þrjótar fylgjast náið með ferðum fólks Lyfja vill kaupa apótekið af Einari „Innflutt verðbólga er í raun mjög lítil“ Forstjóraskipti hjá Apple Áhugaverðustu úrin í Genf þetta árið Advise lýkur 166 milljóna fjármögnun Metaukning heimsókna í Smáralind Norðurorka hagnaðist um 900 milljónir María nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Myndir: Frumkvöðlar framtíðarinnar kynntu vörurnar Hvorki Pósturinn né eftirlit farið að lögum Lækka verð á hundruðum vara Þrjótar fylgjast náið með ferðum fólks Fengu flest hækkun ef þau báðu um hana Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Runólfur ráðinn forstjóri Staða Íslands öfundsverð en getum gert enn betur Ekki verður af samruna Arion og Kviku Lyfja vill kaupa apótekið af Einari Þrír nýir eigendur að LEX Jóhann Ingi til Securitas Pistlar » Sigurður Már Jónsson Hvenær varð Ríkisútvarpið miðja íslenskrar fjölmiðlunar? Sigurður Már Jónsson Af hverju ekki frjálsar kosningar á Kúbu? Fleira áhugavert Viðgerð í Kópavogi að ljúka Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp „Flestir sammála um að orðalagið sé óskýrt“ Segja Rússa hafa hótað Þýskalandi Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Forstjóraskipti hjá Apple Lyfja vill kaupa apótekið af Einari Norðurorka hagnaðist um 900 milljónir „Innflutt verðbólga er í raun mjög lítil“ Metaukning heimsókna í Smáralind Advise lýkur 166 milljóna fjármögnun Áhugaverðustu úrin í Genf þetta árið María nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Miðgildi launa viðskipta- og hagfræðinga 1,3 milljónir Þrjótar fylgjast náið með ferðum fólks Lyfja vill kaupa apótekið af Einari „Innflutt verðbólga er í raun mjög lítil“ Forstjóraskipti hjá Apple Áhugaverðustu úrin í Genf þetta árið Advise lýkur 166 milljóna fjármögnun Metaukning heimsókna í Smáralind Norðurorka hagnaðist um 900 milljónir María nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Myndir: Frumkvöðlar framtíðarinnar kynntu vörurnar Hvorki Pósturinn né eftirlit farið að lögum Lækka verð á hundruðum vara Þrjótar fylgjast náið með ferðum fólks Fengu flest hækkun ef þau báðu um hana Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Runólfur ráðinn forstjóri Staða Íslands öfundsverð en getum gert enn betur Ekki verður af samruna Arion og Kviku Lyfja vill kaupa apótekið af Einari Þrír nýir eigendur að LEX Jóhann Ingi til Securitas