Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Átján mörk í tveimur leikjum í Bestu deildinni

Read Full Article →

Tveir leikir voru í Bestu deilda kvenna í fótbolta í kvöld. Liðin í efstu þremur sætunum áttu leik því FH tók á móti Stjörnunni. FH var í efsta sæti og Stjarnan í því þriðja. Það skorti ekki mörkin í leiknum því þau urðu tíu talsins. Hafnfirðingar voru sterkari og liðið var komið í 2-0 á 26. mínútu. Stjörnukonur spyrntu þá við en það dugði skammt í markaflóði FH-inga. 7-3 sigur FH varð niðurstaðan og liðið heldur toppsætinu. Mörkin úr leik FH og Stjörnunnar: 1-0 Ída Marín Hermannsdóttir 14' 2-0 Ída Marín Hermannsdóttir 26' 2-1 Andrea Mist Pálsdóttir 29' 3-1 Birna Kristín Björnsdóttir 32' 4-1 Hafrún Birna Helgadóttir 35' 4-2 Murielle Tiernan 69' 5-2 Hrönn Haraldsdóttir 72' 6-2 Nia Christopher 77' 7-2 Hrönn Haraldsdóttir 87' 7-3 Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir 90' Blikar völtuðu yfir Valskonur Breiðablik heimsótti Val á Hlíðarenda og þar var sömu sögu að segja hvað markaskorun varðar. Breiðablik hafði góða stjórn á leiknum og raðaði inn mörkum. Blikar leiddu með sex mörkum gegn engu í hálfleik og aldrei spurning hvoru meginn sigurinn myndi enda. Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir minnkaði muninn fyrir Val á 64. mínútu, 6-1. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir rak hinv vegar smiðshöggið fyrir Breiðablik á 84. mínútu í 7-1 sigri liðsins. Það var þriðja mark hennar í leiknum. Breiðablik heldur því öðru sætinu og Valur er áfram í fallsæti. Mörkin úr leik Vals og Breiðabliks: 0-1 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir 5' 0-2 Bryndís Eiríksdóttir (sjálfsmark) 12' 0-3 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir 22' 0-4 Agla María Albertsdóttir 26' 0-5 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir 35' 0-6 Agla María Albertsdóttir 45' 1-6 Ragnheiður Þórunnn Jónsdóttir 64' 1-7 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir 84'

Share this article