Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

FH aftur á toppinn eftir stórsigur

Read Full Article →

FH komst á ný í efsta sæti Bestu deildar kvenna í fótbolta eftir stórsigur á Grindavík/Njarðvík í kvöld. Grindavík komst yfir á 12. mínútu og var 1-0 yfir þar til á 41. mínútu en þá skoraði FH tvisvar fyrir leikhlé. FH bætti svo fjórum mörkum við í seinni hálfleik og vann með sex mörkum gegn einu. FH komst með sigrinum aftur í efsta sæti deildarinnar. FH er með 26 stig, tveimur meira en Breiðablik. Grindavík/Njarðvík er eftir sem áður í 6. sæti með 12 stig. Grindavík/Njarðvík - FH: 1-0 Hannah McLaughlin 1-1 Helena Errington 1-2 Ída Marín Hermannsdóttir 1-3 Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir 1-4 Helena Errington 1-5 Nia Christopher 1-6 Ragnheiður Skúlad. FH fagnar marki fyrr í sumarRÚV / Mummi Lú

Share this article