Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

FH-ingar náðu sínum fyrsta sigri í sumar

Read Full Article →

FH-ingar unnu afar kærkominn sigur gegn Keflavík í Bestu deild karla í fótbolta, 1-2. Adolf Daði Birgisson kom liðinu yfir á 26. mínútu og Kjartan Kári Halldórsson tvöfaldaði forskotið á 41. mínútu. Stefan Alexander Ljubicic skoraði sárabótarmark á þriðju mínútu uppbótartímans. FH var fyrir leik ekki búið að vinna leik í sumar og var í neðsta sæti deildarinnar. Í tíunda leiknum kom fyrsti sigurinn. Liðið er þó enn í neðsta sæti en sigurinn er eflaust nærandi fyrir Jóhannes Karl Guðjónsson og liðsmenn hans. Þórsarar í brasi Þórsarar, sem eru í 11. sæti, töpuðu illa fyrir ÍBV. ÍBV skaust upp fyrir Þór með 1-4 sigri og eru nú með 8 stig en Þórsarar eru í fallsæti með sex stig. Liðið hefur mátt þola tap í síðustu fimm leikjum. Eyjamenn hafa verið að rétta úr kútnum í síðustu leikjum og unnu sinn fyrsta sigur í síðustu umferð. Þeir voru líka í ham í fyrri hálfleik leiksins. Bjarki Björn Gunnarsson kom þeim yfir á 12. mínútu og bætti svo við öðru marki á þeirri 21. Aðeins þremur mínútum eftir það var Sesar Örn Harðarson svo búinn að skora þriðja markið og 3-0 stóð í hléi. Þórsarar minnkuðu muninn á 81. mínútu þegar Ágúst Eðvald Hlynsson skoraði en það voru gestirnir sem áttu lokaorðið. Skot Omars Sowe fór í Ásbjörn Líndal Arnarsson og í netið.

Share this article